Stefnir í harða milliríkjadeilu 13. október 2005 14:32 "
Það var einróma fallist á tillögu utanríkisráðherra að undirbúa málsókn á hendur Norðmönnum," segir Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra eftir stjórnarráðsfund í gær. Allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar voru einhuga um að grípa til aðgerða gegn Norðmönnum vegna Svalbarða enda þykir lagalegur grundvöllur þeirra til svæðisins afar hæpinn. Hvorki sjávarútvegs- né utanríkisráðherra voru sérlega bjartsýnir á að sættir næðust við Norðmenn. Árni segir mikilvægt að greint sé á milli deilunnar um síldina innan hafsvæðis Svalbarða og aðgangs Íslendinga að svæðinu. "Deilan snýst um aðgang að svæðinu og þar teljum við að jafnræðisregla eigi að gilda eins og stofnsáttmáli Svalbarða kveður á um. Þetta er mikilvægt, ekki eingöngu vegna fiskveiða, heldur einnig með tilliti til þess að þarna sé olía eða málmar í jörð sem síðar verður hægt að vinna." Fræðingar telja víst að hefjist málaferli fyrir alþjóðlegum dómstólum vegna þessa máls muni kostnaður ríkisins hlaupa á hundruðum milljóna og taka langan tíma. Árni segir hagsmunagæslu Íslendinga það mikilvæga að slíkur fórnarkostnaður sé ásættanlegur. "Norðmenn eru með þessu framferði sínu að hindra að íslenskur sjávarútvegur geti aukið verðmæti sinna sjávarafurða og um leið hindra þeir skynsamlega nýtingu á auðlindinni við Svalbarða." Hvorki Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra né Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra voru bjartsýnir á að Norðmenn sýndu sáttarhug á fundi Halldórs og norska utanríkisráðherrans í næstu viku. Halldór segist sjálfur óska þess að ekki verði farið í dómsmál. "Ég á ekki von á að sættir náist á þeim fundi. Það tekur lengri tíma en svo en á móti kemur að það gerir allur undirbúningur að málaferlum líka og auðvitað er ekki loku fyrir það skotið að hægt sé að ná landi í millitíðinni." Viðbrögð norskra stjórnvalda voru á þann veg að hægt væri að semja um skiptingu á síldinni en útilokað væri að eiga sérviðræður við Íslendinga um aðgengi að svæði sem Norðmenn stjórna og sé viðurkennt á alþjóðavettvangi.
Fréttir Innlent Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Sjá meira