Undirbúa málsókn gegn Norðmönnum 13. október 2005 14:32
Íslensk stjórnvöld ákváðu í dag að hefja undirbúning að málssókn gegn Norðmönnum fyrir Alþjóðadómstólnum vegna Svalbarðamálsins. Utanríkisráðherrar landanna munu ræða deiluna á fundi í næstu viku. Íslensku skipin fimm sem voru að síldveiðum við Svalbarða héldu út af hinu umdeilda svæði í gærkvöldi. Við blasti að norska strandgæslan myndi færa þau skip til hafnar sem héldu áfram veiðum á svæðinu í trássi við reglur norskra stjórnvalda um kvóta á svæðinu, sem tóku gildi á miðnætti. Embættismenn utanríkis- forsætis- og sjavarútvegsráðuneytis funduðu um málið í utanríkisráðuneytinu í morgun en Íslendingar viðurkenna ekki rétt Norðmanna til að úthluta kvóta á svæðinu. Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, segir að haldinn verði fundur í næstu viku í tengslum við fund utanríkisráðherra Norðurlandanna í Litháen. Segir hann að gerð verði tillaga um að hafinn verði undirbúningur að málsókn vegna Svalbarðamálsins. Það hafi verið dregið mjög lengi þar sem íslensk stjórnvöld hafi viljað fara samningsleiðina. Halldór segist svartsýnn á að það muni takast en segir stjórnvöld samt leggja áherslu á það við Norðmenn að málið verði leyst við samningaborðið. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, segir það eina rétta í stöðunni að láta reyna á málið fyrir alþjóðlegum dómstólum. Það hafi ekki tekist að semja við Norðmenn og þetta því það eina leiðin. Um leið og boðað er til fundar með norska utanríkisráðherranum er Norðmönnum hótað lögsókn fyrir alþjóða dómstólum. Ljóst er þó að slík málaferli muni taka langan tíma. Telur Halldór Ásgrímsson að undirbúningurinn undir málið taki vikur eða mánuði og að það verði kostnaðarsamt fyrir báðar þjóðir. Það sé því hagur allra að leysa málið við samningaborðið.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira