Stærri flóð í Jöklu? 13. ágúst 2004 00:01
Staðkunnugir segja óhætt að búast við mun stærri flóðum í Jökulsá á Dal en því sem nú er afstaðið. Göngin sem grafin hafi verið til að veita ánni fram hjá Kárahnjúkastíflu séu einfaldlega of þröng. Engar tilraunir voru gerðar með líkan af göngunum við hönnun þeirra. Hjáveitugöngin við stíflugerðarsvæðið önnuðu ekki vöxtunum í ánni undanfarna daga og því var reistur risavarnargarður til að vernda svæðið. Þessi bráðabirgðavarnargarður er langhæsta stífla landsins. Jökla er hinsvegar orðin róleg í bili og flóðahættan liðin hjá. Kostnaðurinn hleypur á tugum milljóna króna og einnig töfðust framkvæmdir við gerð Kárahnjúkastíflu um viku. Eftir stendur spurningin, hvað klikkaði? Sigurður Arnalds, talsmaður Landsvirkjunar við Kárahnjúkavirkjun, segir að ekki verði hægt að komast að niðurstöðu um það fyrr en menn komast inn í göngin þegar lækkar í ánni í september. Við hönnun ganga sem þessara er venjulega smíðað líkan og gerðar tilraunir með það. Það var ekki gert í þessu tilfelli þar sem um bráðabirgðamannvirki er að ræða. Það voru því eingöngu stærðfræðiútreikningar sem lágu að baki hönnuninni og þeir geta aldrei verið alveg nákvæmir, segir Sigurður. Hann segir að aldrei hafi verið talin hætta af vatnavöxtum í ánni því alltaf var hægt að hækka varnargarðinn. Vilhjálmur Snædal, bóndi á Skjöldólfsstöðum, þekkir Jöklu vel enda búið við hlið hennar í áratugi. Hann segist hafa „fiktað“ við hana sem krakki og ávallt fylgst vel með henni. Vilhjálmur segist muna eftir Jöklu í mun meiri ham en síðustu daga - áin eigi mun meira til. Tvenn göng taka við vatninu, önnur eru sex metrar í þvermál, hin eru níu metrar. Vilhjálmur segir ljóst að göngin séu einfaldlega of þröng og blæs á tal um grjóthrun því áin hefði hreinsað það fljótt. Hann telur því að mistök hafi átt sér stað á teikniborði verkfræðinga.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira