Jón Steinar í stað Péturs? 13. ágúst 2004 00:01
Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður íhugar alvarlega að sækja um stöðu hæstaréttardómara sem losnar þegar Pétur Hafstein lætur af störfum. Pétur Hafstein hefur verið dómari við Hæstarétt í þrettán ár en hann hefur ákveðið að láta af því starfi 1. október og hefja nám í sagnfræði og stunda hestamennsku á jörð sinni á Rangárvöllum. Staða hans hefur nú verið auglýst laus til umsóknar og rennur frestur til að sækja um út 27. ágúst. Síðast þegar skipað var í stöðu hæstaréttardómara urðu miklar deilur en þá var Ólafur Börkur Þorvaldsson, frændi Davíðs Oddssonar forsætisráðherra, skipaður eftir að Haraldur Henrysson lét af störfum. Meðal annarra umsækjenda voru Hjördís Hákonardóttir héraðsdómari, Ragnar H. Hall hæstaréttarlögmaður og Eiríkur Tómasson lagaprófessor. Sú ákvörðun var kærð til Umboðsmanns Alþingis sem gerði athugasemdir við málsmeðferð Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra. Ekki náðist í Hjördísi Hákonardóttur eða Ragnar H. Hall í dag en Eiríkur Tómasson sagðist í samtali við Stöð 2 í dag ekki vera búinn að taka ákvörðun um hvort hann ætlaði að sækja um að nýju. Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður og lagaprófessor segist hins vegar vera að íhuga alvarlega að sækja um embætti hæstaréttardómara. Hann muni taka um það ákvörðun í næstu viku.
Fréttir Innlent Mest lesið Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent Lögreglan leitar að Cezary Innlent Mokgræðir á rafmyntum Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Innlent „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Innlent Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Erlent Séra Þórir Stephensen er látinn Innlent Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Innlent Fleiri fréttir Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Mímósuísinn ljúffengur en gerir aldrei aftur Jägermeister-ís Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Lögreglan leitar að Cezary Aflvana togari hættulega nálægt landi Vegum lokað og bílar taldir Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Segir verk Þórbergs enn ótrúlega lifandi „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Stærsta kókaínmál Íslandssögunnar og ráðherra sakar starfsmenn Hvals um fíflaskap Lokaeinkunnirnar vísbending um ósamræmda einkunnagjöf Komu slösuðum til bjargar í Drangey Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni Tímamót hjá Klettaskóla: „Allir mjög peppaðir“ Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Gómaður með tæp sextíu kíló af amfetamíni og „bleikt kókaín“ Níu í haldi fyrir að smygla yfir hundrað kílóum af kókaíni í sjókistu Stefnt á kappræður milli utanríkisráðherra Traust til íslenskra yfirvalda sagt fara vaxandi Synjun Suðurlandsbrautar gæti tafið fyrstu lotu Borgarlínu „Þú verður að hafa stjórn á tækninni sem þú nýtir“ Krefst sýknu í öllum ákæruliðum: „Hún ætlaði aldrei að snúa aftur“ Sjá meira