Innlent

Sjúkrastarfsmenn hóta verkfalli

Sjúkrastarfsmenn við Kárahnjúka eru svo ósáttir við framkomu yfirmanna sinna hjá ítalska verktakafyrirtækinu Impregilo að þeir hafa hótað verkfallsaðgerðum ef ekki rætist úr hið fyrsta. Telja þeir að launaskrifstofa Impregilo dragi af þeim tíma hvern mánuð og því eigi þeir talsvert fé inni samkvæmt samningum. Illa gengur að fá bakvaktarálag greitt og margir þeirra eru ósáttir við aðbúnað sinn. Kvartanir sjúkrastarfsmannanna snúast að miklu leyti um það sama og margra annarra starfsmanna. Að launadeild Impregilo sem yfirfer alla vinnutímaseðla, sem öllum er gert að skila í hverjum mánuði, dragi frá tíma á hverjum degi sem svo safnast í talsverðar upphæðir. Þannig eigi þeir samkvæmt samningum að fá greidda tólf tíma hvern vinnudag en Impregilo fækkar um einn til tvo tíma hvern dag. Starfsmenn verða þannig af tekjum upp á 30 - 50 þúsund krónur hvern mánuð. Starfsgreinasamband Austurlands hefur haft fjölmörg mál af þessu tagi á borði sínu síðan í vetur en engin svör fengið hjá Impregilo um hverju þetta sætti. Var þar verið að undirbúa fjölda lögsókna á hendur Impregilo vegna þessa fyrr í sumar. Sjúkrastarfsmenn hafa valið að fara aðra leið og íhuga alvarlega að fara í verkfall en vilja bíða þar sem nýr yfirmaður er að taka við launadeild Impregilo og sá hefur ekki störf fyrr en eftir nokkra daga. Taki sá ekki vel í að laga kjörin er víst að blásið verði í stríðslúðra. Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu þykir sjúkrabílafloti Impregilo ekki upp á marga fiska og hefur blaðið heimildir fyrir því að mörgum sjúkraflutningamönnum sé ekki um sel að þurfa að keyra bílana. Þrátt fyrir ítrekaðar óskir virðist lítill vilji til þess hjá Impregilo að hafa sjúkrabílana í fullkomnu ásigkomulagi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×