Djúpsprengja kom í troll togara 11. ágúst 2004 00:01
Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar eyddu í gær djúpsprengju sem kom í troll togarans Þórunnar Sveinsdóttur. Skipstjórinn á Þórunni Sveinsdóttur hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 10 í gærmorgun og óskaði eftir aðstoð. Torkennilegur hlutur hafði komið í troll togarans og grunaði skipstjórann að um sprengju væri að ræða. Skipið var þá statt í grennd við Vestmannaeyjar. Skipstjórinn fékk strax samband við sprengjusérfræðinga Landhelgisgæslunnar sem töldu af lýsingum að dæma að hluturinn væri bresk djúpsprengja af gerðinni MK 7. Slíkar sprengjur innihalda 147 kg. af TNT sprengiefni. Sprengjusérfræðingarnir flugu með flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SYN, til Vestmannaeyja og voru komnir þangað kl. 15:30. Togarinn var þá staddur rétt fyrir utan höfnina í Vestmannaeyjum. Við nánari athugun kom í ljós að um djúpsprengju var að ræða, sömu gerðar og talið hafði verið. Hún var án forsprengju og kveikjubúnaðar og þess vegna var talið óhætt að skipið kæmi í höfn. Sprengjan var flutt frá borði með aðstoð lögreglu og henni eytt á afviknum stað. Djúpsprengjur voru notaðar til að granda kafbátum í seinni heimsstyrjöld. Hægt var að varpa þeim frá bæði skipum og flugvélum. Í flestum tilfellum kom vatnsþrýstingur sprengingu af stað. Sprengjur af gerðinni MK 7 eru enn notaðar af sjóherjum nokkurra ríkja.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira