Innlent

Forseti Alþingis til Kaliforníu

Halldór Blöndal, forseti Alþingis og eiginkona hans munu heimsækja Kaliforníu dagana 12. - 19. ágúst í boði efri deildar fylkisþings Kaliforníu. Með þeim í för verða Guðmundur Árni Stefánsson og Gunnar Birgisson ásamt mökum og starfsmanni Alþingis. Sendinefndin mun heimsækja Monterey, San Fransisco og höfuðborgina Sacramento. Rætt verður við forseta fylkisþingsins og ýmsa fylkisþingmenn, en einn þeirra er af íslenskum ættum. Sendinefndin mun einnig hitta sérfræðinga og embættismenn á sviði sjávarútvegs og hafrannsókna, almannavarna, menntamála og orkumála, auk aðila úr viðskiptalífinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×