900 milljónir í verkfallssjóði 11. ágúst 2004 00:01
Kennarar eru tilbúnir að eyða 900 milljóna króna verkfallssjóði sínum, segir formaður Félags grunnskólakennara. Fyrsti fundur deilenda eftir sumarhlé hefst klukkan eitt í dag og má búast við stífum fundarhöldum á næstunni. Síðasti fundur kennara og samninganefndar sveitarfélaga var 14. júní, þegar ákveðið var að gera hlé á viðræðum, að ósk kennara. Kennarar hafa farið fram á að byrjunarlaun umsjónarkennara sem hefur náð þrítugsaldri hækki í 250.000 krónur, fyrir samningslok í ágúst 2007, sem er um helmingshækkun. Það er langt umfram eðlilega hækkanir í samningum segja sveitarfélögin. Kennarar vilja einnig minnka kennsluskyldu og auka undirbúningstíma fyrir hverja kennslustund úr 20 mínútum í 30 mínútur. Sveitarfélögin telja þær kröfur einnig leiða til kostnaðarauka og vilja að kennarar slái af þeim ef ræða á miklar prósentuhækkanir launa. Birgir Björn Sigurjónsson, formaður samninganefndar sveitarfélaga, segir að í dag verði skipulagsfundur, þar sem fundaráætlun verði lögð fram af sáttasemjara. Þar sem rétt mánuður er í verkfall kennara, komi til þess, má gera ráð fyrir stífu fundarplani á næstunni. Finnbogi Sigurðsson, formaður félags grunnskólakennara, segist hafa orðið var við þann misskilning að boðað hafi verið til verkfalls 20. september. Hann segir að kennarar hafi einungis samþykkt í atkvæðagreiðslu að boða til verkfalls náist samningar ekki, en boða þurfi formlega til verkfalls hálfum mánuði áður en það hefst, sem er í byrjun september. Finnbogi segir það þó ekki markmið kennara að fara í verkfall heldur vilji þeir ná samningum. Samt sem áður séu þeir tilbúnir til að eyða þeim 900 milljónum sem til séu í verkfallssjóði ef til verkfalls kemur.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Sjá meira