Tvö börn vitni að líkamsárás 11. ágúst 2004 00:01
Sjö manns, þar á meðal tvö börn, voru á vettvangi í Öxnadal þar sem karlmaður á þrítugsaldri á að hafa höfuðkúpubrotið annan mann í síðustu viku. Hinn grunaði hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Lögreglan á Akureyri yfirheyrir nú þá sem voru á staðnum. Rannsóknardeild lögreglunnar á Akureyri segir að yfirheyrslur muni standa fram eftir degi. Í fréttum Bylgjunnar í gær var greint frá því að fólk sem var í bifreið inní Öxnadal hafi óskað eftir aðstoð, laust fyrir klukkan hálfþrjú aðfaranótt fimmtudagsins í síðustu viku. Vegna slæms símasambands var ekki ljóst hvað hefði gerst og var sjúkrabíll sendur á vettvang, þar sem tilkynnt hafði verið um mann sem hefði slasast og misst meðvitund. Fólkið sagði manninn hafa dottið á veginn þegar hann var að fara út úr bílnum eftir deilur sem höfðu komið upp. Maðurinn var meðal annars höfuðkúpubrotinn og blætt hafði inná heila og var hann fluttur á gjörgæsludeild. Eftir að línur tóku að skýrast við rannsókn málsins var karlmaður á þrítugsaldri handtekinn á laugardag grunaður um að hafa veitt manninum áverka. Meintur árásarmaður var úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald á mánudag. Lögreglan segir hinn grunaða og fórnarlambið vera Akureyringa og að þeir hafi komið við sögu lögreglu áður vegna fíkniefnamála. Nú hefur komið í ljós að sjö voru á vettvangi, þar af tvö börn. Lögregla segir þrjá hafa verið í bílnum þar sem óskað var aðstoðar, tveir auk hins slasaða. Líklegt verður að teljast að börnin tvö og aðrir tveir fullorðnir hafi verið í öðrum bíl sem lögregla segir að hafi komið á móti hinum bílnum. Rannsóknarlögreglan á Akureyri vill ekki gefa nánari upplýsingar um málið fyrr en að loknum yfirheyrslum í dag.
Fréttir Innlent Mest lesið „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Innlent Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Innlent Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent Óvissa með sólmyrkvaveður Innlent Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Innlent Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Innlent „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Fleiri fréttir Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Sjá meira