Útlánaeftirlit stóraukist 11. ágúst 2004 00:01
Viðskiptabankarnir hafa stóraukið útlánaeftirlit og endurskoðað innri reglur varðandi útlán í því skyni að draga úr afskriftum. Ein helsta ástæðan er samkeppni milli bankanna um fjárfesta. Sigurjón Árnason, bankastjóri Landsbankans, segist sannfærður um mikilvægi þess að auka útlánaeftirlit því með því megi með tiltölulega litlum tilkostnaði spara gífurlegar upphæðir. Reynslan á Íslandi sé sú að afskriftir séu um eitt prósent af útlánum. Sem dæmi eru útlán Landsbankans um 430 milljarðar og tapist því um 4,3 milljarðar árlega vegna afskrifta. „Með því að auka við mannskap og bæta vinnubrögð við eftirlit, eins og Landsbankinn hefur gert, má lækka prósentutöluna. Það þarf ekki mikla prósentulækkun til þess að skila miklum sparnaði,“ segir Sigurjón. Hann segir að íslenskir bankar eigi að geta komist niður í 0,7 til 0,8 prósenta afskriftahlutfall. Björn Björnsson, aðstoðarforstjóri Íslandsbanka, segir að með stækkun bankanna hafi vinnubrögð orðið faglegri. „Aukin samkeppni milli bankanna er þó ekki síst ástæðan fyrir auknu útlánaeftirliti og skiptir hagur hluthafa þar miklu máli,“ segir Sigurjón. Sigurjón segir að aukið útlánaeftirlit hagnist þó ekki síður viðskiptavinum því hagræði skiptist ávallt milli neytenda og eigenda. „Minna tap skili sér jafnframt í hagstæðari vaxtarkjörum. Það gerir bankann að vænlegri valkosti fyrir neytendur og um leið ákjósanlegri kost fyrir fjárfesta,“ segir Björn. Afskriftir stóru viðskiptabankanna þriggja, Íslandsbanka, Landsbankans og KB banka hafa dregist saman að undanförnu eftir að hafa náð hámarki á síðasta ári. Pers Matt Henje, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs KB banka, segir að afskriftir bankans hafi verið hærri undanfarið en ákjósanlegt þykir. Það mesta sé þó yfirstaðið og verulega muni draga úr afskriftum útlána það sem eftir er af árinu. Hinir bankarnir taka í sama streng og búast við því að þróunin verði áfram jákvæð.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Fleiri fréttir „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegt tímabil klárast á dögunum Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Sjá meira