Hitametið fallið 10. ágúst 2004 00:01
Hitamet ágústmánaðar féll í gær á nokkrum stöðum á landinu. Hitinn mældist hæstur 29,1 stig í Skaftafelli. Fyrra hitamet var 27,7 stig á Akureyri árið 1971. Áfram er búist við góðviðri þrátt fyrir að veður fari hægt kólnandi næstu daga. Hitamet ágústmánaðar féll víða um land í gær en hitinn mældist hæstur 29,1 stig í Skaftafelli. Fyrra hitamet var 28. ágúst 1971 þegar hitinn mældist 27,7 stig á Akureyri. Gamla hitametið var þó slegið víðar en í Skaftafelli en hitinn fór yfir 27,7 stig á að minnsta kosti sjö stöðum á landinu. 29 stig mældust bæði á Þingvöllum og á Árnesi í Gnúpverjahreppi. Þá mældist meira en 28 stiga hiti á nokkrum stöðum í innsveitum fyrir norðan og austan, í Fnjóskadal, á Mývatni og á Egilsstöðum. Einnig mældist 28,5 stiga hiti á Hjarðarlandi í Biskupstungum. Mikill hiti mældist einnig í höfuðborginni en á sjálfvirkri veðurathugunarstöð við Korpu mældist hæstur hiti rétt tæplega 25 stig í gær. Mælir við Veðurstofu Íslands sýndi þó einungis í 18,5 stig sem er nokkuð lægra hitastig en þar mældist í gær. Mikil hlýindi voru víða um land þrátt fyrir að þoka setti strik í reikninginn við norðvesturströndina og inn í Eyjafjörð að sögn Björns Sævars Einarssonar, veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Þar fóru menn varhluta af hitabylgjunni en hitinn mældist víða rúm tíu stig. "Í hitabylgjum er alltaf nokkur hætta á hafgolu og þá kemur með henni þoka af sjónum," segir Björn Sævar. Búist er við ögn svalara veðri á morgun að sögn Björn Sævars sem á von á hægt kólnandi veðri næstu daga. "Það verður þó áfram rjómablíða." Þá er áfram búist við sólríku veðri víðsvegar um landið að sögn Björns Sævars þrátt fyrir að áfram verði hætta á þokulofti með norður- og austurströndinni.
Fréttir Innlent Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Fleiri fréttir Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Sjá meira