Innlent

Landsnet annast raforkuflutning

Nýtt hlutafélag, Landsnet, mun annast flutning raforku og kerfisstjórnun samkvæmt nýjum raforkulögum frá og með 1. janúar næstkomandi. Hlutafélagið hefur verið stofnað og undirbúningsstjórn skipuð, að því er segir í tilkynningu frá iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu. Í bráðabirgðaákvæði raforkulaga er kveðið á um að eigendur þeirra flutningsvirkja sem mynda flutningskerfið skuli koma sér saman um mat á verðmæti þeirra. Eigendur hafa nú komið sér saman um verðmæti flutningsvirkjanna og skrifað undir samkomulag þar að lútandi. Samningsverðið er um 27 milljarðar króna og skiptist á þau fimm raforkufyrirtæki sem eiga flutningsvirki sem verða hluti af Landsneti hf. Fyrirtækin eru Landsvirkjun, Rafmagnsveitur ríkisins, Orkuveita Reykjavíkur, Hitaveita Suðurnesja og og Orkubú Suðurnesja. Landsvirkjun borgar lang stærstan hluta samningsverðsins, ríflega 22 milljarða króna eða 82 prósent verðsins. Rafmagnsveitur ríkisins koma þar á eftir með tæpa 2,5 milljarða.     Iðnaðarráðherra gaf út yfirlýsingu í tengslum við samkomulagið um að val á afhendingarstöðum raforku frá flutningskerfi til dreifikerfa, sem taldir eru upp í viðauka með raforkulögum, verði yfirfarið. Sérstaklega verði kannað hvort samræmis sé gætt einkum er varðar afhendingu raforku úr flutningskerfi að helstu þéttbýlisstöðum landsins. Verði talið nauðsynlegt að breyta afhendingarstöðum mun ráðherra leggja fram frumvarp þar að lútandi eigi síðar en á árinu 2006.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×