Mest 700 metrar í vagninn 9. ágúst 2004 00:01
Með nýju leiðakerfi strætisvagna Reykjavíkur sem tekið verður í notkun seint í haust þurfa þeir sem lengst ganga að fara um 700 metra leið að næsta strætóskýli. Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri Strætó bs., segir útreikninga sýna að þrátt fyrir þetta verði fólk fljótara á áfangastað. Hann segir þrjú viðmið notuð til að ákvarða hvar staðsetja eigi strætóskýli. "Þar sem byggð er þétt og háhýsi mörg miðum við við 300 metra hámarksgöngu íbúa. Þar sem eru raðhús og þriggja hæða hús og lægri er viðmiðið á bilinu þrjú til fimm hundruð metrar og í strjálbýlustu hverfunum, sem eru helst einbýlishúsahverfi, er hámarkið á bilinu fimm til sjö hundruð metrar," segir Ásgeir og minnir á að þarna sé um hámarksviðmið að ræða. Ásgeir segir eflingu almenningssamgangna gegnumgangandi þráð í nýja leiðakerfinu. Í fyrsta sinn verði horft á höfuðborgarsvæðið sem heild og leiðir vagnanna skipulagðar út frá því. "Til að við getum eflt almenningssamgöngur þurfum við fyrst og fremst að ná til nýrra notenda. Við einblínum ekki á ákveðna hópa í samfélaginu heldur reynum að búa til almenningssamgöngur í orðsins fyllstu merkingu sem henta almenningi. Við reynum að búa til kerfi sem getur verið raunhæfur valkostur þannig að þegar fólk tekur ákvörðun um hvernig það ætli að ferðast þann daginn eigi það í raun val um annað en að setjast inn í bílinn sinn." Með nýju kerfi verður þeim leiðum sem strætisvagnarnir aka fækkað úr 35 í 19. Ásgeir segir eknum kílómetrum ekki fækka og ef vel gangi þurfi að fjölga starfsfólki. Hann segir þorra leiðanna 19 verða hraðleiðir sem gangi eftir stofnbrautakerfi og verði fljótfarnari en aðrar strætóleiðir.
Fréttir Innlent Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Fleiri fréttir Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sjá meira