Innlent

Úrskurðaður í farbann

Hæstiréttur felldi úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Ragnari Sigurjónssyni, 62 ára fyrrum skreiðarútflytjanda, en hann kom til landsins á sunnudagskvöld eftir að hafa verið á flótta í Taílandi í fimm ár. Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði Ragnar í gæsluvarðhald til 23. ágúst en Hæstiréttur hefur úrskurðað Ragnar í farbann til sama tíma. Hæstarétti fannst ekki nægilega sýnt fram á að þörf sé á gæsluvarðhaldi til þess eins að tryggja nærveru hans á meðan mál gegn honum sé rekið fyrir héraðsdómi. Ragnar flúði sama mál þegar meðferð þess stóð yfir fyrir rúmum fimm árum síðan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×