Deila um magn sprengiefnis 6. ágúst 2004 00:01
Sprengjusérfræðingum Landhelgisgæslunnar og sprengjusérfræðingi Ístaks ber ekki saman um magn sprengjuefnisins sem fannst við Tjörnes í fyrrakvöld. Lögreglunni á Þórshöfn var gert viðvart um sprengiefni við þjóðveg í Tjörnesi aðfaranótt föstudags. Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar voru sendir norður með þyrlu og sprengdu þeir efnið. Sprengiefnið sem fannst var í plastslöngum ásamt tundurþræði. Það var í góðu ásigkomulagi en hafði að hluta til aðskilist svo sprengifimur vökvi lak út úr slöngunum samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni. Ákveðið var að sprengja efnið frekar en að fjarlægja það, þar sem talin var hætta á að það spryngi yrðu tundurþræðirnir fyrir hnjaski. Adrian King hjá sprengjudeild Landhelgisgæslunnar segir að þeir áætli að um 25 kíló af sprengiefni hafi verið að ræða. Loftur Árnason, framkvæmdastjóri Ístaks, segir það alvarlegt mál sprengiefni hafi orðið eftir þegar framkvæmunum var lokið. Að hans sögn hefur sprengiefnið ekki sprungið á sínum tíma þegar reynt var að slétta bergvegg við veginn, en holurnar sem efnið var í hafi grafist undir í sprengingu. Veðrun hafi síðan rutt efni frá sprengiefninu sem kom þá í ljós. Hann segir það hins vegar af og frá að um 25 kíló af sprengiefni hafi orðið eftir, það geti í mesta lagi verið um tvö kíló. "Þeir virðast ekki átta sig á því að sprengjuholurnar voru ekki fullar af sprengiefni, það voru í mesta lagi 200 grömm á hvern metra. Sprengjusérfræðingur Ístaks fór á svæðið til að kanna aðstæður. Hann segir að svæðið sem Landhelgisgæslan sprengdi sé í mesta lagi um 10 metrar, ekki 30 eins og Landhelgisgæslan segir. Loftur telur að hættan af sprengiefninu hafi ekki verið mikil eins og því var fyrirkomið. Hvellettu eða annan straumrofa hafi þurft til að sprengja það og því hafi ekki um mikla hættu verið að ræða, þó hann dragi ekki úr alvarleika þess að sprengiefni hafi orðið eftir. Gylfi Geirsson hjá Landhelgisgæslunni segir skýringar Lofts ekki standast. Nota hafi þurft stiga til að komast að efninu og það sé því af og frá að það hafi grafist undir í sprengingu. Auk þess hafi það magn, sem Loftur segir að hafi verið þarna, ekki nægt til að valda jafn mikilli sprengingu og varð þegar efninu var eytt.
Fréttir Innlent Mest lesið Málafjöldi tvöfaldast milli ára: „Hálfur milljarður farinn nú þegar“ Innlent Minntust þess ekki að hafa brennt tösku fyrir Stefán Blackburn Innlent Málverk stolið af nasistum fannst í argentískri fasteignaauglýsingu Erlent Sakar eftirlitsaðila um að framfylgja ekki leigubílalögum Innlent Segir dóminn áfellisdóm yfir seinagangi lögreglu í kynferðisbrotamálum Innlent Játaði Hamraborgarmálið, grunaður í hraðbankamálinu og vitni í Gufunesmálinu Innlent Gríðarstór sandstormur olli usla í Arizona Erlent Hraðbankinn fannst á Hólmsheiði Innlent Heilbrigðisráðuneytið færir sig um set Innlent Enginn vilji taka ábyrgð á því hvenær eigi að loka Reynisfjöru Innlent Fleiri fréttir Innbrot og slagsmál í miðborginni Segir dóminn áfellisdóm yfir seinagangi lögreglu í kynferðisbrotamálum Málafjöldi tvöfaldast milli ára: „Hálfur milljarður farinn nú þegar“ Heilbrigðisráðuneytið færir sig um set Enginn vilji taka ábyrgð á því hvenær eigi að loka Reynisfjöru Minntust þess ekki að hafa brennt tösku fyrir Stefán Blackburn Sakar eftirlitsaðila um að framfylgja ekki leigubílalögum Játaði Hamraborgarmálið, grunaður í hraðbankamálinu og vitni í Gufunesmálinu Hraðbankinn fannst á Hólmsheiði „Starfsemi sem þarf auðvitað bara að stoppa" Ekkjan, fjársvikahrina og ferðamenn sem hunsa lokanir Lenti næstum framan á vörubíl við framúrakstur Nú má heita Snjókaldur en ekki Latína „Það er bara allt á floti hérna alls staðar“ Fjárhús varð öldugangi að bráð Sveinn nýr formaður stjórnar Landspítalans Heimsótti foreldra Matthíasar: Sagðist sjálfur hafa átt hugmynd að lögmannaskiptum Milljónirnar 22 voru enn í hraðbankanum þegar hann fannst Fresta byggingu annarrar heilsugæslu um fimm ár hið minnsta Afsökunarbeiðni Sigríðar Bjarkar skipti sköpum Hunsa rauða ljósið í Reynisfjöru: „Er að setja sig í mjög meðvitaða hættu“ Sagði til myndbönd af Matthíasi að berja menn í tálbeituaðgerðum „Stórsigur fyrir réttlæti“ Þýskur herforingi í heimsókn á Íslandi Mannekla hjá lögreglu engin afsökun fyrir fyrningu mála Skoða hvort hægt sé að beita Ísrael refsiaðgerðum Gufunesmálið, Mannréttindadómstóll Evrópu og Sjálfstæðisflokkur stærstur í borginni Móðir um sakborning: „Matthías er blíður og góður“ Sjálfstæðisflokkurinn aftur orðinn stærstur í borginni Ríkið braut á konu með því að láta mál hennar fyrnast Sjá meira