Aðbúnaður flóttafólks til skoðunar 6. ágúst 2004 00:01
Til stendur að taka mál hælisleitenda sem hér bíða úrskurðar Útlendingastofnunar til skoðunar í stjórnkerfi Reykjanesbæjar. Hjörtur Zakaríasson, bæjarritari Reykjanesbæjar og staðgengill bæjarstjóra, gerði ráð fyrir því að funda með Hjördísi Árnadóttur, félagsmálstjóra bæjarins, strax á mánudag. Hjörtur telur að sérstaklega verði skoðuð afstaða Félagsmálastjórnar til greiðslu dagpeninga til hælisleitenda og taldi ekki útilokað að bæjarráð fengi málið til umfjöllunar. Reykjanesbær tók um síðustu áramót við umsjá hælisleitenda samkvæmt samningi við Útlendingastofnun, en áður sá Rauði kross Íslands um fólkið. Um leið var látið af greiðslu vasapeninga til fólksins, en sá háttur hafði verið á hjá Rauða krossinum. "Okkar afstaða er sú að fólk þurfi vasapeninga. Það er ekki nóg að láta fólk bara fá vörur," segir Þórir Guðmundsson, skrifstofustjóri kynningar- og markaðsskrifstofu Rauða kross Íslands. Hann segir viðræður við bæjarfélagið um aðbúnað hælisleitenda standa yfir. Georg Lárusson, forstjóri Útlendingastofnunar, segir að félagsþjónustu Reykjaness hafi verin eftirlátin útfærsla samnings um umönnun hælisleitenda og telur hana hafa gengið mjög vel. Hann vísar því á bug að ákveðið hafi verið að láta af greiðslum vasapeninga til hælisleitenda með það fyrir augum að fæla frá umsækjendur um pólitískt hæli. "Tilgangurinn er fyrst fremst sá að annast þetta fólk með réttum og eðlilegum hætti," segir Georg og áréttaði að þarna væri um bráðabirgðaaðstoð að ræða á meðan mál fólks væri til skoðunar. "Í sjálfu sér er ekkert eðlilegt að hver sem er geti komið hér og þegið peninga og nýtt sér að vild meðan mál hans eru óklár," segir hann. Georg telur hins vegar að hægt væri að sýna sveigjanleika í einstökum málum. "Þá væri mögulega hægt að breyta fyrirkomulagi þannig að viðkomandi fengi peninga til að sinna einhverjum nauðsynlegum þörfum, sem ég veit ekki hverjar gætu verið." Samkvæmt samningi Útlendingastofnunar og Reykjanesbæjar eru greiddar 5.500 krónur á sólarhring með hverjum hælisleitanda, jafnt fullorðnum sem börnum. Þannig fengi bærinn greiddar um 660 þúsund krónur á mánuði með fjögurra manna fjölskyldu. .
Fréttir Innlent Mest lesið Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Innlent Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Erlent Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Innlent Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Innlent „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Innlent Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Innlent Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Innlent Líkur á skriðuföllum á Norðvestur- og Norðausturlandi Veður Fleiri fréttir Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Sjá meira