Hafnarfjarðarhöfn lokað 6. ágúst 2004 00:01
Nú er verið að vinna að því að loka Hafnarfjarðarhöfn en þann 1. júlí síðastliðinn tóku gildi lög um siglingavernd sem stuðla m.a. að því að loka þarf hafnarsvæðum til að koma í veg fyrir að óviðkomandi aðilar eða hlutir komist að skipum. Ennfremur verður haftasvæðum hafna lokað þar sem farmur er geymdur til útflutnings. Víkurfréttir greina frá þessu. Unnið er að lokun Suðurhafnarinnar og hafnarinnar í Straumsvík í samræmi við lögin um siglingavernd. Sett er upp girðing frá norðurhorni Óseyrarbryggju yfir Fornubúðir í suðausturhorn Fornubúða 5 (SÍF-hússins), úr norðvesturhorni sama húss yfir Cuxhavengötu, þaðan vestur að Skipagötu og vestur fyrir Hvaleyrarbakka. Fjögur hlið verða á girðingunni og lýkur uppsetningu á þeim í næstu viku. Hliðin verða við Fornubúðir, Cuxhavengötu, á Suðurgarði og á Skipagötu. Þrjú síðastnefndu hliðin verða rafdrifin aksturs- og gönguhlið. Allur aðgangur um hafnarhliðið verður takmarkaður við þá eina sem eiga þangað brýnt erindi. Allir sem fá heimild til inngöngu verða að bera á sér sýnileg auðkenni og hafa sérstök spjöld í gluggum bifreiða meðan þeir eru á hafnarsvæðinu. Ennfremur verða settar upp myndavélar til eftirlits með hafnarbökkum ásamt innsiglingunni inn í höfnina og lýkur uppsetningu þeirra að mestu í þessari viku. Upptökur og stillingar verða prófaðar í næstu viku. Áætlað er að hafnarsvæðinu verði lokað 1. september en tíminn fram til mánaðamóta verður notaður til æfinga og prófana.
Fréttir Innlent Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira