Tólf ára á Ólympíuleikana 6. ágúst 2004 00:01
Tólf ára gömul íslensk stúlka, Esther Viktoría Ragnarsdóttir, er á leiðinni á Ólympíuleikana í Aþenu nú í ágúst. Esther vann myndasamkeppnina „Ólympíuleikar ímyndunaraflsins“ sem haldin var á vegum Visa International fyrr á þessu ári en tuttugu og níu börn frá sautján löndum fá að fara á Ólympíluleikana í fylgd forráðamanns í kjölfar þátttöku sinnar í keppninni. Nærri ein milljón barna á aldrinum 9-13 ára tók að þessu sinni þátt í Ólympíuleikum ímyndunaraflsins en keppnin hefur verið haldin í fjölmörgum löndum í aðdraganda Óympíuleikanna nokkur undanfarin skipti. Þema keppninnar í ár var „Hvernig geta Ólympíuleikarnir stuðlað að bættri framtíð?“ og var keppendum uppálagt að mála eða teikna mynd út frá því. Að þessu sinnu koma sigurvegararnir frá Brasilíu, Kanada, Kína, Grikkandi, Íslandi , Ítalíu, Máritíus, Mexíkó, Noregi, Póllandi, Rúmeníu, Rússlandi, Sádí-Arabíu, Suður-Afríku, Tyrklandi, Bretlandi og Úkraínu. Sigurvegararnir munu dvelja í Aþenu meðan Ólympleikarnir fara þar fram, frá 12. til 17. ágúst. Meðal annars munu þeir verða viðstaddir opnun sýningar á myndum sem bárust í keppnina og athöfn þar sem meðlimir Alþjóðaólympíunefndarinnar og keppendur á leikunum munu veita sigurvegurunum verðlaunapeninga. Er það jafnframt fyrsta verðlaunaafhending Ólympíuleikanna í Aþenu. Sigurvegararnir munu einnig verða viðstaddir keppni í ýmsum íþróttagreinum, s.s. sundi kvenna og karla, fimleikum karla, bogfimi kvenna og strandblaki kvenna og karla. Einnig munu sigurvegararnir fara í skoðunarferðir í Aþenu og nágrenni hennar. Einn sigurvegaranna 29 verður valinn úr hópnum í Aþenu og honum boðið á Vetrarólympíuleikana í Torino á Ítalíu sem haldnir verða árið 2006. Áður hafa alls 175 ungir listamenn frá 35 löndum unnið ferð á Ólympíuleikana og Vetrarólympíuleikana í kjölfar þátttöku í Ólympíuleikum ímyndunaraflsins. Sigurvegarar keppninnar hafa verið viðstaddir Ólympíuleikana í Atlanta í Bandaríkjunum, Nagano í Japan, Sydney í Ástralíu og Vetrarólympíuleikana í Lillehammer í Noregi og Salt Lake City í Utah í Bandaríkjunum. Myndir sigurvegaranna munu verða til sýnis meðan á Ólympíuleikunum stendur í Polis-garðinum í miðborg Aþenu. Ljósmyndir af listaverkununum og fréttir af því sem á daga sigurvegaranna drífur í Aþenu verður unnt að nálgast á vefsíðu keppninnar www.visa.com/visakids
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Sjá meira