Innlent

Athugasemdir gerðar við hemlabúnað

Athugasemdirnar voru alls fimm. Þær vörðuðu stililngu aðalljósa, útblásturskerfið, reykþykkni, stýrisenda, loftleka í lofthemlakerfinu og hemlunargetu aksturshemla, að sögn Jóns Hjalta. Sigvaldi Arason, framkvæmdarstjóri Borgarverks, eiganda flutningabílsins, fullyrti það í samtali við Fréttablaðið í fyrradag að engar athugasemdir hefðu verið gerðar við hemlabúnað bílsins. Sigvaldi svaraði ekki hringingum Fréttablaðsins í dag. "Við endurnýjuðum hemlabúnað bílsins í vetur sem hluta af reglulegri yfirferð á öllum tækjum fyrirtækisins," sagði Sigvaldi. Það var nokkru áður en aðalskoðun fór fram. Hann sagði því ekkert um það hvort gert hefði verið við hemlabúnaðinn eftir athugasemdirnar sem voru gerðar við hemlabúnaðinn við skoðun .



Fleiri fréttir

Sjá meira


×