Deilt um bremsur flutningabílsins 5. ágúst 2004 00:01
Flutningabíllinn, sem ekið var út af brúnni yfir Laxá í Laxárdal á þriðjudag til að forðast árekstur við fjölskyldubifreið, stóðst ekki skoðun í apríl. Heimildir Fréttablaðsins segja að athugasemdir hafi verið gerðar við bremsubúnað flutningabílsins en því neitar eigandinn, Sigvaldi Arason, framkvæmdastjóri Borgarverks í Borgarnesi. "Eina athugasemdin sem gerð var varðaði pústkerfi flutningabílsins," segir Sigvaldi. Flutningabíllinn fékk endurskoðun í apríl og átti að koma með hann í skoðun aftur í maí. Að sögn Sigvalda var farið með bílinn í skoðun morguninn sem slysið varð. Þá hafi hins vegar verið svo mikið að gera í skoðuninni að ökumanni flutningabílsins hafi verið vísað frá með þeim tilmælum að mæta aftur eftir tvær vikur. Ekki náðist að fá þetta staðfest í gær. Að sögn Jóhannesar B. Björgvinssonar, lögregluvarðstjóra í Búðardal varð slysið með þeim hætti að flutningabílnum, hlöðnum fimmtán tonna malarhlassi, var ekið niður nokkuð bratta brekku sem liggur niður að einbreiðri brú. Á brúnni var fyrir Toyota Landcruiser jeppi sem kom úr gagnstæðri átt. Í jeppanum voru hjón með tvö ung börn. Ökumaður jeppans reyndi að bakka út af brúnni þegar hann gerði sér ljóst í hvað stefndi, en náði ekki að forða árekstrinum. Ökumaður flutningabílsins þykir þó hafa sýnt snarræði með því að sveigja út af brúnni. Flutningabíllinn skall framan á horn jeppans áður en hann fór í gegn um vegrið brúarinnar og steyptist niður í stórgrýti í árfarveginum. Fallið var um tíu metrar. Með ólíkindum þykir að ökumaður flutningabílsins hafi sloppið nær ómeiddur en hann var fluttur á slysadeild og útskrifaður samdægurs með minni háttar meiðsl. Fjölskyldan slapp við meiðsl. Að sögn Jóhannesar stendur rannsókn slyssins yfir. Meðal annars á eftir að taka skýrslu af manni sem varð vitni að árekstrinum.
Fréttir Innlent Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira