Innlent

13 innbrot tilkynnt í Reykjavík

Lögreglan í Reykjavík hefur fengið tilkynningar um 13 innbrot um helgina. Fimm þeirra áttu sér stað í gærmorgun í Seljahverfi. Þar var litlu stolið en lögregla hefur haft uppi á hinum seka, sem að sögn hennar á við geðræn vandamál að stríða. Lögregla segir þetta ekki meira en gengur og gerist, með þeim fyrirvara að hugsanlega verði tilkynnt um einhver innbrot þegar fólk snýr heim á morgun. Hún segir óvenju marga hafa verið á ferli í höfuðborginni um helgina og að slíkt kunni að hafa komið í veg fyrir innbrot.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×