Innlent

Umferðin gengið áfallalaust

Umferðin til höfuðborgarsvæðisins hefur gengið áfallalaust fyrir sig í dag að sögn lögreglu. Mest er umferðin á Suðurlandsvegi þar sem meðal annars gestir á Landsmóti hestamanna á Hellu eru á leið heim. Reyndar myndaðist flöskuháls af mótssvæðinu og inn á þjóðveginn nú síðdegis en engin óhöpp höfðu orðið skömmu fyrir fréttir. Sömu sögu er að segja af umferðinni á Vesturlandi. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík hefur verið jafn bílastraumur inn í borgina í dag en búast má við aukinni bílaumferð þegar líður á kvöldið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×