11 þúsund manns á Hellu 4. júlí 2004 00:01
Talið er að um 11 þúsund gestir hafi verið á Landsmóti hestamanna á Gaddstaðaflötum við Hellu en mótinu lýkur síðar í dag. Á þriðja tug fíkniefnamála hafa komið upp í tengslum við Landsmótið sem telst mikið fyrir fjölskyldu- og íþróttamót. Að mati lögreglumanna sem stóðu vaktina í nótt var ölvun mun minni á mótssvæðinu en var þar í fyrrinótt. Skemmtanahald hefur samt farið vel fram. Lárus Dagur Pálsson, framkvæmdastjóri Landsmótsins, er mjög ánægður á heildina litið. Hann segir góðan anda vera á meðal áhorfenda og að mjög háar einkunnir hafi verið hjá kepppendum. Aðspurður hvort fíkniefnamálin varpi ekki skugga á mótið segir Lárus fíkniefni vera skugga á samfélaginu í heild. Hann hrósar lögreglunni fyrir að koma upp um þessi mál á mótinu en harmar að fjölmiðlar skuli gera þetta að stærsta „atburði“ mótsins. Hægt er að hlusta á viðtal við Lárus með því að smella á hlekkinn sem fylgir fréttinni í fréttayfirlitinu. Engin stórmál hafa komið á borð lögreglunnar. Hins vegar er fjöldinn allur af minni málum, smá pústrum og minni háttar líkamsmeiðingum þar sem gæslufólk hefur orðið að ganga á milli manna. Þá hafa komið upp nokkur mál sem tengjast eignaspjöllum. Fyrr í dag gistu tveir fangageymslur sem sögðust hafa fengið að pufukeyra í morgun glænýjan bíl frá einu bifreiðaumboðanna í Reykjavík. Þeir skruppu á bifreiðinni austur á Hellu á ofsahraða auk þess sem þeir eru grunaðir um að hafa verið undir áhrifum vímuefna. Lítilræði af fíkniefnum fannst við leit í bifreiðinni. Nýja bifreiðin er óskemmd eftir þessa hættuför. Fjölmenni var á tjaldsvæðinu að Skógum en þar er talið að um 500 manns hafi verið, svo og í Galtalækjarskógi þar sem ungmenni tóku að safnast saman þegar líða tók á helgina í tengslum við svokallaða SMS-hátíð sem ungmenni boða með SMS-skeytum á milli síma. Á þessum stöðum hefur verið talsverð ölvun en allt gengið bærilega vel þrátt fyrir það.
Fréttir Innlent Mest lesið Í gæsluvarðhaldi fram í september Innlent RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Innlent Starfsmaðurinn undir sérstöku eftirliti í fyrra Innlent Trump segir Selenskí geta valið um að binda enda á stríðið eða berjast áfram Erlent „Rússar verða að binda enda á stríðið sem þeir hófu“ Erlent Flugþjónar Air Canada bjóða yfirvöldum birginn Erlent Segja að stjúpsonur norska krónprinsins verði ákærður Erlent Fullir í flugi Innlent „Þetta er stórt mál og tekur auðvitað tíma“ Innlent Ákærður fyrir fjórar nauðganir Erlent Fleiri fréttir Skiltið skein of skært vegna bilunar í búnaði Göngu- og hjólabrú við Dugguvog opnuð síðdegis í dag Tollum Evrópusambandsins frestað um óákveðinn tíma Aukin gæsla og breytt snið á Menningarnótt Eldur á Kleppsvegi Starfsmaðurinn undir sérstöku eftirliti í fyrra Grétar Br. Kristjánsson lögmaður látinn Ögurstund í Washington, spilavandi ungra karla og aukin gæsla á Menningarnótt Fólk verði oft samdauna sérkennilegum aðstæðum í vinnunni „Þetta er stórt mál og tekur auðvitað tíma“ Í gæsluvarðhaldi fram í september Fullir í flugi Einn handtekinn vegna líkamsárásar og annar vegna innbrots RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Hundrað þúsund ferðamenn heimsóttu Jökulsárlón í júlí Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Loka Miðfjarðará með grjóti og segja stjórnvöld hafa dregið lappirnar Fundað um Múlaborg og eldislöxum varist Braust inn á flugvallarsvæðið Ekkert bendi til að brotið hafi verið á fleiri börnum Hnullungur þveraði veginn þar sem banaslys varð „Það bjó enginn í húsinu“ Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Vísað ölvuðum frá borði á leið frá Keflavík „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Segir dómsmálaráðherra hafa talað inn í óttann Íþróttafélag kært fyrir að bjóða upp á áfengi utandyra Evrópa verði að hætta að stóla á Bandaríkin og ólögleg bílastæðagjöld Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Sjá meira