Innlent

Tíu fíkniefnamál á Hellu

Tíu fíkniefnamál hafa komið upp í tengslum við Landsmót hestamanna á Gaddstaðaflötum við Hellu frá því í gær. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli er sá fjöldi mála og það magn, sem lagt hefur verið hald á, áhyggjuefni. Lögreglan hefur til að mynda lagt hald á 41 gramm af hvítu efni sem talið er vera kókaín eða amfetamín. Auk þess hefur nokkuð verið tekið af hassi og hylkjum með glærum vökva sem ætla má að séu deyfi- eða sljóvgunarlyf. Talið er að um 10 þúsund manns séu á mótssvæðinu og mikil ölvun var þar í nótt. Fangageymslur voru fullnýttar þar sem fimm menn gistu vegna óspekta, fíkniefnamála og minni háttar líkamsmeiðinga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×