Innlent

Tekjur kvenna hækka meira

MYND/Vísir
Tekjur kvenna hér á landi hækkuðu meira en tekjur karla á síðasta ári. Meðalatvinnutekjur Íslendinga árið 2003 voru 2 milljónir 636 þúsund krónur. Þetta kemur fram á heimasíðu Hagstofu Íslands. Tekjur íslenskra kvenna hækkuðu um 5,8 prósent á milli áranna 2002 og 2003. Tekjur karla hækkuðu mun minna, eða um 3,7 prósent. Árið 2002 höfðu konur 60 prósent af tekjum karla en sú tala fór upp í 61,6 prósent á síðasta ári. Þegar kynin eru tekin saman hækkuðu meðalatvinnutekjur þeirra um 4,4 prósent á milli ára. Atvinnutekjur eru hæstar um miðbik starfsævinnar, þegar fólk er á aldrinum 35-54 ára, en á síðasta ári voru tekjur fólks á þessum aldri 3,2 milljónir króna að meðaltali. Atvinnutekjur eru skilgreindar sem beinar skattskyldar launagreiðslur fyrir vinnuframlag í aðalstarfi auk skattskyldra dagpeninga og ökutækjastyrks. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×