Vopnavald gegn ljósmyndara 3. júlí 2004 00:01
Vopnaður hermaður á jeppabifreið frá herlögreglunni á Keflavíkurflugvelli gerði athugasemd við störf ljósmyndara Víkurfrétta þar sem hann var við fréttamyndatöku á Reykjanesbraut ofan við Grænás síðdegis í gær. Hermaðurinn hélt um skotvopn sitt á meðan hann yfirheyrði ljósmyndarann í vegarkantinum. Hann spurði hvers vegna ljósmyndarinn væri á þessum stað og hvað hann væri að mynda. Þá sagði hermaðurinn við ljósmyndara blaðsins að óheimilt væri að beina myndavélinni að herstöðinni á Keflavíkurflugvelli. Þettur kemur fram á vef Víkurfrétta, www.vf.is. Ljósmyndari Víkurfrétta gerði grein fyrir störfum sínum á svæðinu. Hann var að mynda afskipti tveggja íslenskra lögreglumanna af unglingspiltum úr Reykjanesbæ sem herlögreglan vildi meina að hafi ætlað að fara undir girðinguna sem lokar af Keflavíkurflugvöll. Þetta er í annað skiptið á stuttum tíma sem hermenn af Keflavíkurflugvelli, vopnaðir skotvopnum, gera athugasemdir við störf ljósmyndara Víkurfrétta utan girðingar Keflavíkurflugvallar. Í fyrra skiptið var það við kirkjugarð Keflavíkur við Garðveg fyrir nokkrum vikum. Íslenskir lögregluþjónar á staðnum höfðu ekki miklar áhyggjur af störfum ljósmyndarans en sögðu að varnarliðsmenn væru viðkvæmir fyrir því að teknar séu myndir af svæðinu. Víkurfréttir fordæma þessi ítrekuðu afskipti vopnaðra hermanna af störfum ljósmyndara og blaðamanna fjölmiðilsins. Framkoma hermanna eða herlögreglu er ekki ásættanleg, segir á vefsíðu Víkurfrétta, þar sem vald er látið í ljós með augljósum vopnaburði utan girðingar Keflavíkurflugvallar, burt séð frá því hvort svæðið sé varnarsvæði eða ekki.
Fréttir Innlent Mest lesið Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Innlent Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Innlent Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Innlent ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Erlent Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Innlent Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Innlent Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Innlent „Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan“ Innlent Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Innlent Svandís stígur til hliðar Innlent Fleiri fréttir Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Vill finna bróður sinn „Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan“ Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar endurnýjað Svandís stígur til hliðar Flugvél á leið til Egilsstaða snúið við yfir Hallormsstað Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Sigmundur Davíð og Kemi Badenoch meðal gesta í boði Meloni Keyptu ekki skýringar um neyðarvörn í Mjóddinni Bakkaði á ofsahraða með lyfjakokteil í blóðinu Laufey Rún hætt störfum hjá Miðflokknum Sanna býður sig fram undir merkjum Vors til vinstri Styggur svanur í sundi handsamaður og skilað í næstu tjörn Viðreisn stundi hræðsluáróður í stað þess að ræða málin Inflúensan á uppleið og seinni bylgjan handan við hornið Flensan á flugi og Sundlaugarmenningunni fagnað í Vesturbæjarlauginni Játaði en áfrýjaði samt og krafðist sýknu Páll Winkel meðal umsækjenda um embætti ráðuneytisstjóra Vilja takmarka fjölda barna sem getin eru með sama sæði Fjöldi svæða á landinu sambandslaus með öllu Fjölskyldur fórnarlamba krefjast ábyrgðar Sádi-Arabíu Staðsetning Íslands „hernaðarlega mjög mikilvæg“ Fjögur ár fyrir smygl á rúmum fjórum kílóum af kókaíni 325 milljónir í næsta áfanga LED-ljósavæðingar í Reykjavík Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Sjá meira