Innlent

Fjölmenni á Landsmóti hestamanna

Átta þúsund manns eru komnir á Landsmót hestamanna á Gaddstaðaflötum við Hellu til að fylgjast með þeim átta hundruð hestum sem keppa á mótinu í ár. Mótið er það viðamesta sem haldið hefur verið hingað til; hrossin eru góð og gestir láta vel af mótinu. Að þessu sinni var mikið lagt í kynningarstarf á mótinu erlendis. Það hefur skilað á milli tvö og þrjú þúsund erlendum gestum sem hingað koma gagngert á Landsmótið. Þeir ættu ekki að verða fyrir vonbrigðum með það sem fyrir augu ber. Lárus Dagur Pálsson, framkvæmdastjóri Landsmótsins, segir hrossin á mótinu í ár vera frábær og hugsanlega hafi þau aldrei verið betri. Hann segir vel geta farið svo að þau hross sem skari fram úr verði keypt af einhverjum erlendum hestaáhugamönnum  Fjöldi fólks hafði komið sér fyrir í brekkunni strax klukkan hálf átta í morgun til að fylgjast með úrslitum í milliriðli í A-flokki. Nylon, Stuðmenn og Stebbi Hilmars eru meðal þeirra sem sjá um að skemmta fólki milli keppna en svo var að heyra á mótsgestum að þessar stjórstjörnum hafi fallið í skuggann af hestunum. Ef landsmótsgestir höfðu yfir einhverju að kvarta í dag þá var það veðrið sem var mun blautara en spáð hafði verið. Það er kannski bót í máli að veðurfræðingar á Landsmóti fengu að blotna, rétt eins og allir hinir, t.a.m. Guðríður Arnardóttir, veðurfræðingur á Stöð 2 sem hafði trú á því að veðrið myndi batna.  



Fleiri fréttir

Sjá meira


×