Innlent

Grípa ekki til neikvæðra aðgerða

Greenpeace-samtökin munu ekki grípa til neikvæðra aðgerða þó Íslendingar hætti ekki hvalveiðum. Þetta kom fram í samtali talmanna samtakanna við formann Verkalýðsfélags Húsavíkur í gær, en sá óskaði eftir fundinum. Á heimasíðu stéttarfélaga í Þingeyjarsýslum kemur einnig fram að samtökin séu hlynnt ábyrgum fiskveiðum sem stjórnað sé í samræmi við vísindalega ráðgjöf. Greenpeace segjast ekki taka afstöðu til staðfestingarkæru viðskiptaráðherra Bandaríkjanna á hendur Íslendingum eða bréfs Bush forseta í kjölfarið til fulltrúaþingsins þar sem fram kom að hann hyggðist ekki grípa til viðskiptaþvingana gegn Íslendingum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×