Innlent

Þrettán fá fálkaorðu

Forseti Íslands sæmdi þrettán Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum nú síðdegis. Þeir sem fengu riddarakross að þessu sinni eru; Aðalgeir Kristjánsson, sagnfræðingur, fyrir fræðistörf Aðalsteina Magnúsdóttir húsmóðir á Grund í Eyjafirði fyrir varðveislu menningarverðmæta og landbúnaðarstörf Ari Teitsson fyrrverandi formaður Bændasamtaka Íslands fyrir störf að félagsmálum bænda Arnaldur Indriðason rithöfundur fyrir ritstörf Edda Bergmann Guðmundsdóttir fyrrverandi formaður Íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík fyrir störf að íþróttamálum fatlaðra Jóhann Axelsson prófessor fyrir vísindastörf Magnús Guðmundsson útgerðarmaður á Tálknafirði fyrir störf að sjávarútvegsmálum Margrét Pálmadóttir tónlistarmaður fyrir frumkvæði í tónlist Marteinn H. Friðriksson dómorganisti fyrir tónlistarstörf Sigurbjörn Bárðarson íþrótta- og tamningamaður fyrir framlag til hestaíþrótta Steinunn Friðriksdóttir formaður Styrks fyrir störf í þágu krabbameinssjúkra Tómas Grétar Ólason verkstjóri fyrir störf að líknar og félagsmálum Þorvaldur Kristinsson formaður Samtakanna 78 fyrir störf að réttindamálum samkynhneigðra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×