Detroit Pistons malaði LA Lakers 15. júní 2004 00:01
Detroit Pistons malaði Los Angeles Lakers mélinu smærra, 88-68, í þriðja leik liðanna í lokaúrslitum NBA-deildarinnar í körfubolta og er því komið 2-1 yfir. Leikurinn fór fram á heimavelli Detroit og leikmenn liðsins voru greinilega búnir að jafna sig eftir afar sárt tap í leiknum á undan þar sem þeir glutruðu niður sex stiga forskoti í blálokin og töpuðu svo í framlengingu. Leikmenn Lakers voru einfaldlega á hælunum í þessum leik og lykilmenn eins og Kobe Bryant og Shaquille O’Neal voru eins og skugginn af sjálfum sér. Reyndar var varnarleikur Detroit frábær og það var ekki mikið pláss sem stjörnur Lakers fengu til að athafna sig. Sigur Detroit var aldrei í neinni hættu en liðið tök völdin strax í byrjun leiks og lét þau ekki af hendi. Liðið stjórnaði hraðanum á leiknum og Lakers-liðið náði aldrei að komast inn í sinn leik. Næsti leikur verður því algjör lykilleikur fyrir Lakers því ólíklegt verður að teljast að þeir geti komið til baka eftir að lenda undir 1-3 á móti liði sem er hreinlega stútfullt af baráttu og sigurvilja. Larry Brown, þjálfari Detroit, var stoltur af sínum mönnum í leikslok: „Þetta var frábært hjá strákunum og ég er ekki frá því að liðið geti hreinlega ekki spilað betur - svo gott var þetta,“ sagði hinn reyndi Brown, sem lengi hefur verið í bransanum en hefur enn ekki tekist að stýra liði til meistaratitils - nú er lag. Hjá Detroit var Richard Hamilton atkvæðamestur með 31 stig og tók sex fráköst. Chauncey Billups kom næstur með 19 stig en annars var liðsheildin frábær og skilaði mestu. Hjá Lakers var Shaquille O’Neal með 14 stig og tók átta fráköst. Þetta er í fyrsta sinn sem hann skorar minna en 25 stig í 21 leik í lokaúrslitum og segir það meira en mörg orð. Kobe Bryant var með 11 stig og það er hreint með ólíkindum að þetta dúó sé aðeins með 23 stig samanlagt í einum leik. Kobe skoraði meðal annars aðeins eitt stig í fyrri hálfleik og það kom úr tæknivíti.
Íþróttir Mest lesið „Þá sér maður að það brestur margur og klökknar“ Sport Heimi fannst Arnar byrja of bratt með Ísland Fótbolti Newcastle loks að fá leikmann Enski boltinn Enska augnablikið: Skellur þegar hann hrinti dómaranum Enski boltinn Hafa selt næstum alla vörnina en liðsstyrkur á leiðinni frá liði Hákonar Enski boltinn Sjáðu dramatísku sigurmörkin og Stjörnumenn skella Víkingum Íslenski boltinn Grealish lánaður burt en City vill ekki selja Savinho Enski boltinn Crystal Palace tapaði áfrýjun og þarf að spila í Sambandsdeildinni Enski boltinn Mun Jake Paul mæta Anthony Joshua í hringnum? Sport Vilja dæma skíðastökkvarana í bann vegna saumaskandalsins Sport Fleiri fréttir Spánn skiptir þjálfaranum út Með fyrsta þrjátíu tuttugu leikinn í sögu WNBA Fengu loksins leyfi til að spila spænskan deildarleik í Miami Enska augnablikið: Hlaupið út úr húsinu Ótryggður Giannis tekur ekki þátt í undirbúningi Grikklands Klappað fyrir fyrstu konunni sem dæmdi í MLB Hafa selt næstum alla vörnina en liðsstyrkur á leiðinni frá liði Hákonar „Þá sér maður að það brestur margur og klökknar“ Grealish lánaður burt en City vill ekki selja Savinho Vilja dæma skíðastökkvarana í bann vegna saumaskandalsins Crystal Palace tapaði áfrýjun og þarf að spila í Sambandsdeildinni Newcastle loks að fá leikmann Heimi fannst Arnar byrja of bratt með Ísland Delap með tvö í öruggum sigri í síðasta leik fyrir mót Sjáðu dramatísku sigurmörkin og Stjörnumenn skella Víkingum Palace stefnir á að selja fyrirliðann fyrir gluggalok Enska augnablikið: Skellur þegar hann hrinti dómaranum Viðbeinsbrotnaði þegar hann fagnaði sigri í Nascar Mun Jake Paul mæta Anthony Joshua í hringnum? Dagskráin í dag: Besta deild karla á sviðið Glasner: Myndi ekki skipta á skildinum fyrir sæti í Evrópukeppni félagsliða „Brugðumst vel við þeim aðstæðum sem leikurinn henti í okkur“ Þjóðverjar unnu Doncic lausa Slóvena „Rýr stigasöfnun í deildinni vissulega áhyggjuefni“ Halldór: Góð ákvörðun hjá þeim að hætta spila boltanum Barcelona rúllaði yfir Como Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 2-4 | Stjarnan sigraði Víking í viðburðarríkum leik Uppgjörið: KA - ÍBV 1-0 | Dagur Ingi tryggði KA mikilvæg stig Pólland missir NBA stjörnu fyrir Eurobasket Hallgrímur: Ef þú slakar á 1-3% er þetta fljótt að breytast Sjá meira