Kettir skrásettir á Suðurnesjum 8. júní 2004 00:01
Það getur heldur betur verið að kaupa köttinn í sekknum að þiggja gefins nokkurra vikna kassavanan sætan kettling, því að hið opinbera er farið að líta þennan ferfætta skottpening hýru auga til gjaldtöku. Þannig ber það til dæmis til um þessar mundir að boð er komið frá heilbrigðiseftirliti Suðurnesja um að skárasetja skuli gjörvallan kattastofninn á Suðurnesjum. Þarf nú hver Suðurnesjamaður að fara með kött sinn og framvísa vottorði um merkingu og spóluormahreinsun kattarins og er skráningargjaldið fimmtán þúsund krónur á kött. Ekki verður þó tekið árgjald af köttum, en greiða þarf þ.etta gjald af öllum köttum sem nu eru til, jafnvel þótt þeir séu orðnir gamlir, og svo af öllum kettlingum sem bætast við í framtíðinni. Eyrnamerking ein og sér, sem bætist við, kostar svo 3,400 krónur og örmerking tæpar fjörur þúsund krónur, ef menn kjósa hana fremur en eyrnamerkinguna Spóluormahreinsun með efni og vottorði kostar svo 3,400 krónur, en þó er hægt að semja um eyrnamerkingu og spóluromahreinsun saman á um það bil fjögur þúsund krónur. Gjöld af kettlilngnum, sem maður þáði gefins í viðkvæmni augnabliksins þegar maður sá hann, geta því hæglega numið um tuttugu þúsund krónum. Óskráðir kettir verða færðir til dýrageymslu eftir tíunda ágúst í sumar, verða þeir seldir fyrir áföllnum kostnaði eða aflífaðir. Að sögn Valgerðar Sigurvinsdóttur hundaefitrlitsmanns á Suðurnesjum er þetta gert vegna stöðugra og aukinna kvartana íbúa vegna katta, sem fara inn í hús og míga þar og ráðast jafnvel á sunnudagsssteikina, ef húsmóðirin lítur undan og svo hafa sumir ódannaðir kettir þann plagsið að míga í barnavagna, svo helstu lestir séu taldir. Aðallega eru þetta villtir kettir, eða kettir sem hafa týnst frá heimilum sínum , eða eru hreinlega í vanhirðu, að sögn Valgerðar. Búið er að koma upp geymsluhúsnæði yfir þá ketti, sem verða teknir úr umferð og stefnt er að því að innan tíðar verði ekkert nema siðmentaðir kettir með tryggga heimilisfestu og nafnnúmer, á Suðurnesjunum.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara Innlent Fleiri fréttir Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Sjá meira