Fjölmenni á tónleikum í Kerinu 14. ágúst 2004 00:01
Talið er að þrjú til fjögur þúsund manns hafi verið á tónleikum á afar sérstæðum stað á Suðurlandi í dag. Tónleikarnir fóru fram í hinu eina sanna Keri í Grímsnesi, fimm þúsund ára gömlum eldgíg. Svipaðir tónleikar fóru fram fyrir sautján árum og þá sungu meðal annarra Kristján Jóhannsson og Kristinn Sigmundsson. Og í dag, sautján árum síðar, var leikurinn endurtekinn með nýjum stórsöngvurum. Þeir voru Sigrún Hjálmtýsdóttir, Davíð Ólafsson, Jóhann Friðgeir Valdimarsson og Ólafur Kjartan Sigurðsson. Auk þeirra komu fram Karlakór Selfoss, Jóhann Sigurðarson leikari, Árni Johnsen, sem var kynnir og fleira á tónleikunum, og hinn 10 ára Alexander Jarl Þorsteinsson frá Vestmanaeyjum en hann söng sig inn í hug og hjörtu viðstaddra. Þess má geta að hann hefur ekki komið oft fram. Það var Hestamiðstöð Suðurlands sem stóð fyrir tónleikunum í fjáröflunarskyni fyrir uppbyggingu mótsvæðis þeirra á Rangárbökkum. Mikil og góð stemning var í gígnum djúpa, hljómburður góður og veðrið eins gott og á varð kosið, enda naut fólk sín í veðurblíðunni á fögrum stað við fagra tónlist. Nokkur örtröð var við veginn um Grímsnesið en að sögn lögreglunnar á Selfossi gekk allt vel fyrir sig og engin óhöpp urðu. Árni Johnsen segir tónleikagesti hafa sýnt frábæra umgengni því eftir að tónleikunum var lokið var rétt eins og lóan hefði sest og flogið aftur; meira sást ekki á svæðinu.
Fréttir Innlent Mest lesið Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Erlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent Fleiri fréttir Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Sjá meira