Heiðin gröf við Kolkuás 14. ágúst 2004 00:01
Gröf sem talin er heiðin fannst við Kolkuás, nálægt Hólum í Hjaltadal, í vikunni. Mannabein og svínakjálki voru í gröfinni. Fundurinn er afar óvæntur segja fræðimenn sem vinna að uppgreftri á svæðinu. Fræðimenn hafa unnið að uppgreftri húsaleifa við Kolkuás í um það bil þrjár vikur. Margt óvænt hefur komið í ljós við uppgröftinn og í síðustu viku fannst gröf með mannabeinum. Þá fannst einnig músahola og inni í henni kjarnar úr plómum eða sveskjum sem væntanlega hafa verið fluttar hingað til lands á síðmiðöldum. Þá hafa fundist leifar af múrsteini og þakefni í yngstu lögunum og einnig annar varningur sem talinn er tengjast Hólastóli.. En þrátt fyrir fundinn eru ekki öll kurl komin til grafar og athugun á gröfinni er enn á byrjunarstigi. Ragnheiður Traustadóttir fornleifafræðingur segir ennþá erfitt að segja til um frá hvaða tíma gröfin er. Mannvistaleifarnar sem fundist hafa eru hluti af hauskúpu, tönnum og upphandleggsbeini að því er talið er. Ragnheiður segir fundinn vera mjög óvæntan þar sem hópurinn hafi verið að rannsaka húsaleifar. Erlendir fræðimenn sem að uppgreftrinum koma telja fundinn afar áhugaverðan. Fleming Rieck frá Þjóðminjasafni Danmerkur segir hópinn hafa fundið fyrstu merkin um tengslin við Hóla. Þeir hafi fundið tígulsteina og kalk til notkunar við byggingu húsa og brot úr skífum sem sennilega séu þakskífur. Það þýðir að þeir hafi fundið byggingarefni sem flutt hefur verið til hafnar biskupssetursins að Hólum og það er mjög mikilvægur áfangi að sögn Riecks. Myndin er frá Hólum í Hjaltadal.
Fréttir Innlent Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Fleiri fréttir Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sjá meira