Stórkostleg upplifun 14. ágúst 2004 00:01
Ólympíuleikarnir voru settir í 28. sinn í Aþenu í gærkvöld. Setningarhátíðin þótti takast sérstaklega vel. Þetta telst hafa verið ein stærsta sýning sem sett hefur verið upp með yfir fjögur þúsund listamenn. Björk Guðmundsdóttir var í stóru hlutverki en hún söng lag sitt Oceania, óð til sjávarins sem ekki gerir greinarmun á lýði eða löndum. Kristján Arason, handboltakappi með meiru, var á setningarhátíðinni í gær ásamt eiginkonu sinni, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra. Kristján segir Björk hafa verið glæsilega og staðið sig mjög vel. Hann segist hafa fundið fyrir töluverðu stolti að eini söngvari athafnarinnar hafi verið Íslendingur og fólk í kring skildi ekki af hverju hann hafi alltaf verið að standa upp að klappa fyrir Björk og taka myndir af henni. Kristján segir það hafa verið stórkostlega upplifun að vera viðstaddur opnunarhátíðina en þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann er viðstaddur opnunarhátíð Ólympíuleikanna. Hann keppti með handboltalandsliðinu á tvennum leikum, í Los Angeles 1984 og í Seoul 1988. Kristján segir mun á því að ganga sjálfur inn á leikvanginn eða vera á áhorfendapöllunum. Geðshræringin við það að koma inn á Ólympíuleikvang í svona athöfn er gjarnan mikil en þá sér maður hins vegar ekki sýninguna líkt og Kristján gerði í gær. Kristján ætlar á leik handboltalandsliða Íslands og Króatíu sem hefst klukkan hálf fimm að íslenskum tíma. Aðspurður hvort það sé ekki erfitt að sitja upp í stúku þegar landsliðið keppir segir Kristján þá tilfinningu lögnu vera farna. Nú hafi hann bara gaman að því að horfa á og segir allt geta gerst í leiknum við heimsmeistarana á eftir. Hægt er að hlusta á viðtal við Kristján Arason með því að smella á hlekkinn hér að neðan.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Fleiri fréttir Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Sjá meira