Frestur landeigenda framlengdur 14. ágúst 2004 00:01
Frestur landeigenda á Héraði til andmæla vegna fyrirhugaðs eignarnáms Landsvirkjunar á fimm jörðum hefur verið framlengdur um viku. Einn landeigendanna segir fullkomlega óeðlilegt að iðnaðarráðuneytið, sem sé beinn aðili að málinu, eigi að ákveða hvort Landsvirkjun fái leyfi til þess að leggja háspennulínu á Héraði. Ágúst Sindri Óskarsson, lögfræðingur Sigurðar Arnarsonar, eins landeigendanna fimm, fékk í vikunni framlengingu á þriggja vikna fresti skjólstæðings síns til þess að andmæla fyrirhuguðu eignarnámi Landsvirkjunar. Sigurður og lögfræðingur hans hyggjast leggja fram greinargerð um málið strax eftir helgi þar sem meðal annars verður bent á hve óeðlilegt það sé að iðnaðarráðuneytið, sem sé beinn aðili að málinu, eigi að ákveða hvort háspennulína verði lögð í gegnum jarðirnar fyrir austan. Í fréttum Stöðvar 2 þann 19. júlí síðastliðinn lýsti Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstjóri iðnaðarráðuneytisins, því yfir að línan yrði lögð hvað sem andmælum liði. Það væri búið að ákveða. Þetta segir Sigurður algerlega óeðlilegt. Í fyrsta lagi sé sveitarfélagið á Austur-Héraði ekki búið að veita framkvæmdaleyfi og í öðru lagi sé um að ræða þessi beinu tengsl iðnaðarráðuneytisins að málinu. Það hljóti því að vera einhver annar sem eigi að kveða upp úr með hvort línan verði lögð eða ekki. Aðspurður hvort hugsanlegt sé að ráðuneytið sé vanhæft í málinu segir Sigurður svo vera. Myndin er af gasaflsstöð Landsvirkjunar.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fleiri fréttir Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Sjá meira