Ætla að verja titilinn 3. október 2004 00:01
Meistarar meistaranna í kvennaflokki í körfuknattleik, fer fram í dag kl. 17 í Sláturhúsinu í Keflavík. Þar etja heimastúlkur kappi við KR úr Vesturbænum. Hefðin er sú að bikarmeistarar síðasta tímabils leiki við núverandi Íslandsmeistara en þar sem Keflavík er tvöfaldur meistari kemur það í hlut silfurhafans í bikarkeppninni að taka þátt í þessum úrslitaleik. Af þeim níu skiptum, sem Meistarakeppnin hefur verið haldin, hafa Keflvíkingar unnið fjórum sinnum og undanfarin fjögur ár hefur titillinn í þrígang farið til Keflavíkurliðsins. Ólíkt tímabilinu í fyrra, eru Keflavíkurstúlkur með bandarískan leikmann í sínum röðum. Hún heitir Reshea Bristol og að sögn Sverris Þórs Sverrissonar, þjálfara Keflavíkur, fellur hún vel inn í liðið. "Hún lék með okkur á móti í Danmörku og stóð sig vel þar. Hún gerir leikmennina í kringum sig betri," sagði Sverrir og bætti því við að hann hefði úr miklu að moða í vetur. "Ég er með ungar stelpur í bland við eldri reynslubolta og þær eru alltaf tilbúnar að hlaupa allar þær mínútur sem ég gef þeim. Ég geri þær kröfur að stelpurnar mæti tilbúnar og taki vel á þeim, því KR gefur okkur ekki neitt. Þær mæta grimmar líka þannig að við þurfum á öllu að halda í dag." Birna Valgarðsdóttir, fyrirliði Keflavíkur, meiddist á æfingu fyrir skömmu en Sverrir átti von á að hún yrði með í dag. "Það átti jafnvel að hlúa að meiðslunum eftir að leikurinn er afstaðinn, það verður bara að koma í ljós hvernig þetta verður." Georgía Olga Kristiansen, einn af leikmönnum KR, sagði Vesturbæjarliðið stefna á alla titla sem væru í boði og því mikilvægt að mæta ákveðnar til leiks. "Við misstum besta leikmann tímabilsins í fyrra, Hildi Sigurðardóttir, í atvinnumennsku til Svíþjóðar. En það er bara skemmtileg áskorun og setur meiri pressu á okkur hinar að standa okkur. Við ætlum okkur að vinna þær í leiknum í dag," sagði Georgía.
Íþróttir Mest lesið Zlatan sendi sænsku táningsstelpunni skilaboð eftir vítaklúðrið Fótbolti Dómarinn í úrslitaleik HM með kartöflu um hálsinn eftir að hann hitti Trump Fótbolti Hvar mun Mbeumo spila fyrir Man United? Enski boltinn Vill eyða draugasögunni um að Grindavík spili ekki í Grindavík í vetur Körfubolti „Svo ákveð ég alltaf að drulla mér ennþá lengra í burtu“ Fótbolti Slapp snemma úr sjö ára banni og samdi strax við Skagamenn Körfubolti Lars Lagerbäck: Það verður enginn hálshöggvinn fyrir þetta Fótbolti Hvítskeggjaði kylfusveinninn stal senunni á Opna breska Golf Ofurstjarnan Caitlin Clark ekki með í Stjörnuleiknum Körfubolti Kátína í Kenía og kvalir í Köben Sport Fleiri fréttir Hera í úrslit á Evrópumótinu „Svo ákveð ég alltaf að drulla mér ennþá lengra í burtu“ Strákarnir tryggðu sér úrslitaleik um sæti í A-deild EM með stórsigri Hvítskeggjaði kylfusveinninn stal senunni á Opna breska Vill eyða draugasögunni um að Grindavík spili ekki í Grindavík í vetur Slapp snemma úr sjö ára banni og samdi strax við Skagamenn Kátína í Kenía og kvalir í Köben Zlatan sendi sænsku táningsstelpunni skilaboð eftir vítaklúðrið Dómarinn í úrslitaleik HM með kartöflu um hálsinn eftir að hann hitti Trump Hvar mun Mbeumo spila fyrir Man United? Ofurstjarnan Caitlin Clark ekki með í Stjörnuleiknum Dagskráin í dag: Opna og sex stiga leikur á Akureyri Hrókeringar í markmannsmálum Man City Cosic skaut Njarðvík á toppinn áður en hann fer til KR Spánverjar örugglega áfram þrátt fyrir vítaklúður Töpuðu stórt áður en þeir mæta Blikum í Meistaradeildinni Andri Fannar á leið frá Bologna enn á ný Vélmennið leiðir Opna breska Hófu titilvörnina á naumum sigri Ince missir prófið og þarf að borga yfir milljón í sekt Afturelding að styrkja sig fyrir seinni hlutann Reyndi allt til að koma kúlunni niður Madueke skrifar undir hjá Arsenal Goðsögnin sorgmædd yfir aðstöðunni Lars Lagerbäck: Það verður enginn hálshöggvinn fyrir þetta Víkingur afturkallar Daða Berg: Fær ekki að spila bikarúrslitaleikinn Hittust á Íslandi og keyptu Mbeumo Guðrún til Braga í Portúgal: „Nýr klettur í vörninni okkar“ Veiðimaðurinn leiðir á Opna breska Hörður tekur við starfi Arnars Guðjóns hjá KKÍ Sjá meira