Undrast vinnubrögð tollayfirvalda 17. september 2004 00:01
Móðir sextán ára gamallar stúlku undrast mjög vinnubrögð tollayfirvalda í Leifsstöð. Stúlkan, sem var að koma með flugi frá Stansted-flugvelli í London á miðvikudagskvöldið, gleymdi svörtum Adidas-bakpoka með verðmætum í á færibandinu í tollinum. Þegar stúlkan uppgötvaði það var strax haft samband við tollinn en þar fengust þau svör að bakpokinn hefði verið afhentur manneskju sem hefði sagst þekkja eigandann. Stúlkan var að koma úr ferð með Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur og segir móðirin að búið sé að hafa samband við alla sem voru í ferðinni en enginn kannist við að hafa tekið bakpokann. Hún segir ótrúlegt að tollverðir skuli hafa afhent ókunnum manni bakpoka án þess að grennslast nánar fyrir um málið. Hún hafi oftar en einu sinni óskað eftir svörum en ekkert sé hægt að gera. Hún segist hafa spurt hvort ekki væri hægt að bera kennsl á manninum úr myndavél í tollhliðinu. Hún hafi fengið þau svör að það sé ekki hægt þar sem engin myndavél sé til staðar í hliðinu. Móðirin segir að í bakpokanum hafi verið stafræn myndavél, farsími, geislaspilari, skólabækur og vegabréf. Tjónið sé því tilfinnanlegt. Hún biður þann sem kannast við að hafa tekið pokann um að senda sér tölvupóst. Netfangið er: hennysg@internet.is
Fréttir Innlent Mest lesið Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Fjórir handteknir í aðgerðunum í Gnoðarvogi Innlent Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Erlent Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Innlent Nýir ofnar skemmast vegna súrefnis í heita vatninu Innlent Haraldur Briem er látinn Innlent Fleiri eldislaxar í Haukadalsá: „Þetta lítur alls ekki vel út“ Innlent Segir dæmi um að fjölskyldur hafi lokað á fólk vegna BDSM Innlent Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Erlent Segir tugi þúsunda sendingarkostnað vera dulinn landsbyggðarskatt Innlent Fleiri fréttir Fá tímabundna undanþágu frá viðskiptaþvingunum Í samtali við norsku kafarana hvort þeir komi aftur Segir tugi þúsunda sendingarkostnað vera dulinn landsbyggðarskatt Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Eldislaxar í Haukadalsá, Gnoðarvogur og samgöngur á Vesturlandi Segir dæmi um að fjölskyldur hafi lokað á fólk vegna BDSM Snýr aftur sem bæjarstjóri eftir árslangt veikindaleyfi Nýir ofnar skemmast vegna súrefnis í heita vatninu Fleiri eldislaxar í Haukadalsá: „Þetta lítur alls ekki vel út“ Helgi Vilberg Hermannsson er látinn Haraldur Briem er látinn Fjórir handteknir í aðgerðunum í Gnoðarvogi Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Vara við eldislax í Haukadalsá Erlendir hópar komi til Íslands í skamman tíma til að hnupla úr verslunum Líkamsræktarstöðin í Laugum rýmd: Reykurinn reyndist vera gufa Tilkynnt um sjónskerðingu og sjálfsvígshugsanir eftir inntöku þyngdarstjórnunarlyfja Gagnrýni á fegurðarsamkeppnir sé ekki niðurlæging í garð kvenna Líkamsræktarstöð World Class í Laugum rýmd vegna vatnsleka Skuggahliðar þyngdarstjórnunarlyfja og útskúfun vegna BDSM Ámálaða merkið þótti ekki nógu flott Slasaður eftir að tveir bílar skullu saman á hættulegum gatnamótum við Skógafoss Vísað úr landi eftir ólöglega dvöl: Togaði í hár konunnar, sparkaði í hana og mölvaði síma hennar Guðbjörg ráðin skólastjóri í tólfta grunnskóla Hafnarfjarðar Skyldleiki við lögregluþjón þvældist fyrir Stærðar borgarísjaki sást vestur af Látrabjargi „Hefði ég ekki verið kominn af stað væri ég ekki að tala við þig núna“ Kærumál seinkar verklokum við brúagerð í Gufudalssveit Bjóða þeim sem skera niður regnbogafána í heimsókn Valdar strætóleiðir ganga oftar og lengur Sjá meira