Vala á nóg inni ennþá 2. desember 2004 00:01 "
Ég tel mig enn eiga nóg inni og vonast til að þessar breytingar verði til þess að ég nái árangri á ný," segir Vala Flosadóttir frjálsíþróttamaður, en hún og unnusti hennar, Magnús Aron Hallgrímsson kringlukastari, eru að flytja búferlum frá Gautaborg í Svíþjóð til Árósa í Danmörku. Afar lítið hefur borið á Völu um nokkurra ára skeið nú og hafa á meðan orðið miklar framfarir í stangarstökki en Vala setur það ekki fyrir sig. "Þetta snýst um metnað og vilja og ég hef nóg af báðu eins og sakir standa. Auðvitað hafa framfarir orðið og eiga eftir að verða meiri en ég vil meina að ég eigi enn nóg inni til að komast aftur í hóp þeirra bestu og ég er viss um að dvöl í Danmörku og breytt umhverfi mun hafa jákvæð áhrif á það." Í Árósum mun Vala æfa undir stjórn Lars Nielsen, danska landsliðsþjálfarans í stökkgreinum, en í borginni er Ólympíumiðstöð Dana og öll aðstaða fyrsta flokks. Unnusti Völu, Magnús Aron, mun einnig njóta góðs af enda mun hann aftur hefja samstarf við Véstein Hafsteinsson, sem er landsliðsþjálfari Danmerkur í kastgreinum. Vésteinn hefur náð þar góðum árangri enda hokinn af reynslu eftir áratuga starf og mun Magnús áreiðanlega njóta góðs af. Vala vill ekki meina að aðstæður í Svíþjóð séu á nokkurn hátt slæmar en hvorugt þeirra hefur þó náð sérstökum árangri síðan þau hófu æfingar þar fyrir nokkrum árum. "Það er rétt að ég er ekki mjög ánægð með þann árangur sem ég hef náð síðan ég kom hingað fyrir þremur árum síðan, sem er mjög svekkjandi þar sem ég veit að ég get meira. En ég vil meina að meðan metnaður er til staðar og viljinn til að leggja áfram hart að sér hefur ekki dvínað er hægt að opna allar dyr og á það mun reyna í Danmörku." Þau Vala og Magnús koma heim til Íslands milli jóla og nýárs til að hitta vini og ættingja en annars segir Vala ekkert í spilunum sem bendi til að þau komi heim til keppni á næstunni. "Það á auðvitað eftir að skýrast þegar fram líða stundir en eins og er keppi ég líklega lítið heima nema þá mögulega í sumar."
Íþróttir Mest lesið Söknuður af æskufélaganum: „Áttum að vera gömlu karlarnir“ Körfubolti „Við vorum algjörlega týndir“ Enski boltinn Eitt vandræðalegasta kvöldið í sögu Manchester United Enski boltinn „Ég er ekki Hitler“ Fótbolti United banarnir drógust á móti Leeds bönunum Enski boltinn Eir Chang fær norrænan styrk fyrir efnilegt íþróttafólk Sport Æfðu miðjuskotin: Síðasta æfing strákanna fyrir stóru stundina í myndum Körfubolti Isak gæti spilað fyrsta leikinn sinn á tímabilinu Enski boltinn EM í dag: Ætli Katowice sé enn versta borg í heimi og leðurjakki í hitabylgju Körfubolti Freyr stýrði Brann inn í riðlakeppni Evrópudeildarinnar með stæl Fótbolti Fleiri fréttir Æfðu miðjuskotin: Síðasta æfing strákanna fyrir stóru stundina í myndum Söknuður af æskufélaganum: „Áttum að vera gömlu karlarnir“ „Við vorum algjörlega týndir“ „Ég er ekki Hitler“ United banarnir drógust á móti Leeds bönunum Eir Chang fær norrænan styrk fyrir efnilegt íþróttafólk Eitt vandræðalegasta kvöldið í sögu Manchester United Uppgjörið: Valur - Braga 1-3 | Valskonur töpuðu og mæta Ceciliu Rán og Karólínu Leu Finnar byrjuðu EM á naumum sigri í Norðurlandaslag Amanda og félagar mæta Blikum Strákarnir hans Guðjóns Vals byrja tímabilið vel Freyr stýrði Brann inn í riðlakeppni Evrópudeildarinnar með stæl Davíð Snær lagði upp mark í bikarsigri Isak gæti spilað fyrsta leikinn sinn á tímabilinu „Margir tittir í þessum hópi og máttum ekki við því að missa stóran mann“ Setji skugga á fyrsta leik að hann sé við Ísrael Þrír íslenskir kastarar keppa á HM í Tókýó Diljá og Karólína skoruðu báðar EM í dag: Ætli Katowice sé enn versta borg í heimi og leðurjakki í hitabylgju Svona var EM-Pallborðið Myndir: Áfallalaus æfing fyrir utan að Hilmar fékk bolta í punginn Ísabella Sara lagði upp í Meistaradeild Evrópu Segir Daníel ekki líkan pabba sem leikmanni en hafi Guðjohnsen-svægið Uppgjörið: Breiðablik - Athlone Town 3-1 | Tvö mörk á tveimur mínútum og Blikar unnu Tveir nýliðar í landsliðshópnum Arnar kynnti fyrsta hópinn í undankeppni HM Strákarnir ekki fengið neinar hótanir Albert bjartsýnn á að Eze sé lokapúslið: „Komin þvílík breidd í þetta“ Ástin sögð ástæða þess að Sancho vilji ekki Roma „Hefur komið með stál og styrk og þekkingu inn í varnarleik Stjörnunnar“ Sjá meira