Sport

Birgir Leifur úr leik

Afríkuför Birgis Leifs Hafþórssonar, kylfings úr GKG, hlaut snubbóttari endi en Birgir hafði vonast til en hann er úr leik eftir tvo hringi á Dunhill golfmótinu sem fram fer í S.Afríku. Var Birgir einu höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn en hann spilaði fyrstu tvo hringina á fimm höggum yfir pari og endaði í 80. sæti ásamt fleiri keppendum. Er árangurinn dapurlegur fyrir Birgi enda tímafrekt og dýrt að taka þátt í móti alla leið í S.Afríku en þetta mót var jafnframt hið fyrsta sem hann tekur þátt í á evrópsku mótaröðinni sem hann vann sér inn takmarkaðan þáttökurétt á fyrr í haust. Má gera að því skóna að hvor hringur fyrir sig hafi kostað nálægt 200 þúsund krónum sé útgjöld Birgi Leifs tekin saman.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×