Innlent

Tekjumunur landshluta mikill

Svo virðist sem tekjumunur milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar hafi fest sig í sessi á undanförnum árum. Nú eru skattgreiðendur á höfuðborgarsvæðinu með um fimm prósent hærri tekjur en landsmeðaltal en landsbyggðarfólk er að meðaltali tíu prósentum undir meðaltali. Í vefriti fjármálaráðuneytisins er sýnd þróun launatekna á síðustu tíu árum. Þar má sjá að fyrir tíu árum var munurinn töluvert minni en hann er nú. "Á fyrri hluta tíunda áratugarins voru meðaltekjur á hvern framteljenda sem búsettur var utan suðvesturhornsins fjórum prósentum lægri en landsmeðaltekjur meðan sambærilegt meðaltal fyrir þá sem bjuggu á því landsvæði var tveim prósentum fyrir ofan meðaltalið, " segir þar. Breytingin er mest á Vestfjörðum. Þar voru tekjur að meðaltali um tíu prósent yfir landsmeðaltali í upphafi tíunda áratugarins en eru nú um sex prósentum undir meðaltalinu. Tekið er fram í vefritinu að tekjur erlendra verkamanna við virkjunarframkvæmdir hafi mjög lítil áhrif á þessar niðurstöður.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×