Gylfi Þ. Gíslason látinn 19. ágúst 2004 00:01
Gylfi Þ. Gíslason, fyrrverandi prófessor, alþingismaður og ráðherra er látinn á áttugasta og áttunda aldursári. Gylfi var einn helsti stjórnmálaleiðtogi liðinnar aldar. Hann fæddist 7. febrúar árið 1917 í Reykjavík og lauk doktorsprófi í rekstrarhagfræði frá háskólanum í Frankfurt árið 1954. Gylfi sat á þingi fyrir Alþýðuflokkinn í 32 ár, eða frá árinu 1946 til 1978, og gegndi ráðherraembætti samfellt í fimmtán ár, frá 1956 til 1971, allan tímann sem menntamálaráðherra en einnig sem iðnaðar- og viðskiptamálaráðherra. Megnið af ráðherratíð sinni sat hann í svokallaðri viðreisnarstjórn Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks. Þá var hann þingflokksformaður Alþýðuflokksins í áratug, frá 1968 til 1978, formaður flokksins frá 1968 til 1974 og forseti sameinaðs þings. Gylfi var einnig prófessor í viðskiptadeild Háskóla Íslands um árabil auk þess að gegna margvíslegum öðrum trúnaðarstörfum. Auk stjórnmála- og kennslustarfa sýndi Gylfi að hann var liðtækt tónskáld og samdi fjölda kunnra sönglaga sem komið hafa út á hljómplötum. Eiginkona Gylfa er Guðrún Vilmundardóttir og eignuðust þau þrjá syni, prófessorana Þorstein og Þorvald, og Vilmund sem á sínum tíma sat á Alþingi og gegndi ráðherraembætti.
Fréttir Innlent Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Fleiri fréttir Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Sjá meira