Erfitt að gera betur en þetta 22. ágúst 2004 00:01 "
Það sem hjálpaði mest við að gera Menningarnótt eins vel heppnaða og raun bar vitni var þetta dásamlega veður sem var allan daginn," segir Sif Gunnarsdóttir, verkefnastjóri Menningarnætur í Reykjavík. Hátíðinni lauk í fyrrakvöld með einni mestu flugeldasýningu sem sést hefur í borginni fyrir utan gamlárskvöld og gerðu gestir góðan róm að þeim viðburðum sem í boði voru hvarvetna í miðbænum allan daginn. Sif telur að veðurblíðan hafi gert það að verkum að þeir sem venjulega sitja heima á kvöldum sem þessum hafi í þetta sinn látið sig hafa það að mæta. "Það skiptir afar miklu máli og gerir það að verkum að fólk er miklu tillitssamara en ella væri. Það aftur þýðir að fleiri njóta dagsins betur og láta ekki smáatriði fara eins mikið í taugarnar á sér. Það þarf þolinmæði þegar mannfjöldinn verður slíkur og tiltölulega auðvelt fyrir hlutina að fara úrskeiðis." Að sögn Sifjar voru um 230 mismunandi atburðir skipulagðir á Menningarnótt en á óvart kom sá fjöldi listamanna og verslana sem buðu upp á gjörning af ýmsu tagi sem ekki var hluti af auglýstri dagskrá. "Það kom mér þægilega á óvart hversu víða slíkar sýningar voru í gangi og ég hafði enga hugmynd um." Mest reyndist um tónlistaratriði á þessari Menningarnótt en þó var talsverð breidd í þeim atburðum sem í boði voru. Dans- og myndlistarsýningar voru víða. Gjörningar voru framreiddir á fjölmörgum stöðum og tónleikar Rásar 2 á hafnarbakkanum þóttu takast afar vel. Sif segir að hátíðin hafi gengið það vel að hún hafi strax í gærmorgun farið að hafa áhyggjur af næsta ári. "Það var næstum því mín fyrsta hugsun hvernig í ósköpunum væri hægt að gera betur á næsta ári því það verður afskaplega erfitt." albert@frettabladid.is
Fréttir Innlent Mest lesið Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent 51 prósent sé nóg Innlent Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Innlent Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Innlent Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Innlent Svandís segir nei Innlent „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Erlent Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Innlent Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Innlent Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Innlent Fleiri fréttir Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur 51 prósent sé nóg Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Óvenju annasamur júlí á fæðingardeild Landspítala Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Neitaði að gefa upp persónuupplýsingar Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Hnífjafnt í nýrri könnun Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Sjá meira