Kostnaður eykst um 2,4 milljarða 20. ágúst 2004 00:01
Landssamband íslenskra útvegsmanna telur að hækkað markaðsverð á olíu kunni að fela í sér kostnaðarauka upp á 2,4 milljarða fyrir íslenska útgerð á ársvísu. Að sögn Friðriks J. Arngrímssonar, framkvæmdastjóra LÍÚ, hefur lágt afurðaverð, hátt olíuverð og hátt gengi krónunnar farið saman á síðustu misserum en allir þessir þættir hafa slæm áhrif á rekstrarskilyrði sjávarútvegsins. "Olían er mikilvæg. Þetta er einn stærsti útgjaldaliðurinn okkar, næst stærstur á eftir launum," segir Friðrik. Hann segir olíukostnað vega misþungt eftir tegund veiða og veiðarfæra. Hlutfall olíukostnaðar er einna hæst í veiðum þar sem notast er við troll. "Í einstökum veiðigreinum getur þetta skipt sköpum um hvort veiðar séu arðbærar eða ekki," segir Friðrik. Á mörkuðum í gær fór verð á olíu hátt í fimmtíu dali á tunnu og hefur aldrei verið hærra. Talið er að verð á olíu fari ekki lækkandi á næstunni og muni hugsanlega fara enn hærra sökum ófriðarins í Írak og óvissu í Rússlandi og Venesúela. "Við veltum þessu mikið fyrir okkur fyrir afkomuspá okkar síðast og það er alveg klárt að þetta hefur einhver áhrif á afkomu fyrirtækjanna," segir Ríkharður Daðason hjá greiningardeild KB banka. Hann segir að afkoma Vinnslustöðvarinnar í vikunni hafi verið betri en búist var við og spennandi verði að sjá uppgjör hjá Samherja og HB Granda á næstunni. "Samherji hefur verið að grípa til aðgerða meðal annars með því að láta skipin landa um borð í önnur skip," segir Ríkharður. Ríkharður segir að útgerðarfélögin hafi verið dugleg við að finna leiðir til að lágmarka olíukostnað og annan kostnað til mótvægis við óhagstæð ytri skilyrði. Hann telur þó að ef olíuverð haldi áfram að hækka jafnskart þá muni gagnaðgerðir útgerðarfélaganna ekki duga til og verðþróunin komi niður á afkomu félaganna.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira