Vilko ehf. aftur af stað 11. nóvember 2004 00:01
Forráðamenn fyrirtækisins Vilko ehf. á Blönduósi, sem eyðilagðist í eldsvoða í lok síðasta mánaðar, eru að hefja framleiðslu á nýjan leik. Þessa dagana er verið að prufukeyra nýjar vélar og standa vonir til að framleiðsla hefjist strax eftir helgina. Tjónið nam tugum milljóna króna. Grunur lék á að um íkveikju hefði verið að ræða. "Það fór allt fyrirtækið, þetta gjöreyðilagðist náttúrlega," sagði Daníel Árnason, stjórnarformaður Vilko ehf. "Við höfum verið að koma okkur fyrir á nýjum stað, viða að okkur tækjum, hráefni og umbúðum. Það kemur allt frá útlöndum. Við höfum unnið hörðum höndum að endurreisn fyrirtækisins og þetta er að fara af stað aftur." Vilko ehf. stendur á gömlum grunni. Þar eru framleiddar súpur og bökunarblöndur. Á næstu dögum tekur það til starfa í nýju húsnæði, að Hnjúkabyggð á Blönduósi. "Við verðum að fara af stað með hægvirkari vinnslu en áður, en gæðin verða í góðu lagi," sagði Daníel. "Við verðum ekki búnir að tækjavæða okkur til fulls, þegar framleiðslan hefst á nýjan leik, en við reynum að vinna lengri daga. Hjá okkur hafa unnið 5-6 manns, en verða um 10 núna meðan verið er að ljúka við tækjavæðinguna. Þetta er gamalt og gróið fyrirtæki, sem er vel kynnt. Ég vona að markaðurinn hafi ekki gleymt okkur. Það er dýrt að missa eitt hak úr tannhjólinu." Daníel sagði að það tæki einhverja mánuði að koma fyrirtækinu í það horf sem það var í áður en bruninn varð. Trúlega yrði það ekki fyrr en einhvern tíma í vetur sem framleiðslan yrði komin í fullan gang.
Fréttir Innlent Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Sjá meira