Sport

Fjölnir og Haukar mætast aftur

Dómstóll KKÍ úrskurðaði í gær að Fjölnir og Haukar þurfi að mætast á nýjan leik, og úrslitin í leik liðanna frá því í fyrstu umferð Intersportdeildarinnar dæmd ógild, þar sem hnökrar voru á framkvæmd leiksins. Fjölnir vann en Haukar kærðu leikinn og töldu að karfa sem þeir skoruðu undir lokin hafi verið gild, en þar sem klukka á tímavarðarborðinu fór ekki í gang dæmdu dómararnir hana ólöglega. Liðin þurfa því að eigast við að nýju.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×