Graðhestaskyrið liðin tíð 24. ágúst 2004 00:01
Það er mikill munur á graðhestaskyrinu sem Íslendingar borðuðu fyrir 30 árum og fjölbreyttri, íslenskri matvælaframleiðsu nútímans, segir landbúnaðarráðherra. Samt á íslenskur iðnaður undir högg að sækja, segir framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Fréttastofan fylgdist með þegar landsátakinu „Veljum íslenskt“ var hleypt af stokkunum í dag. Samtök iðnaðarins, Bændasamtökin og Alþýðusamband Íslands standa að landsátakinu „Veljum íslenskt - og allir vinna“. Almenningur mun helst verða átaksins var í formi auglýsinga og íslenskra daga í ýmsum matvöruverslunum. Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir takmarkið fyrst og fremst að vekja athygli almennings á gildi innlendrar framleiðslu fyrir eigin hag og að það skipti máli að fólk velji íslenskt. Sveinn segir óráðið hversu mikið átakið muni kosta. Hann segir ákveðið að það standi hið minnsta í eitt ár en vonast til að árin verði þrjú. Hann segir nokkuð óvenjulegt að ráðast í þess háttar átak á tímum uppsveiflu í samfélaginu en ástæðan sé sú að innlend frameiðsla og samkeppnisiðnaðurinn eigi yfirleitt undir högg að sækja við slíkar aðstæður. Þá sé gengið hátt og vextir háir að sögn Sveins og samkeppnisgreinarnar finni vissulega fyrir því. Þær þurfi þess vegna á svona átaki að halda. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra sagði upphaf þessa átaks vera mikla hátíðarstund og að á síðustu 30 árum hefði mjólkuriðnaðurinn í landinu tekið byltingarkenndum breytingum. Fyrir þremur áratugum hefði hann aðeins verið að framleiða nýmjólk, brauðost og graðhestaskyr. Aðspurður um hvort honum hefði þótt graðhestaskyrið gott sagði Guðni svo vera. Það hefði líka haft góð áhrif á beinin í sér.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira