Fullkomin útsendingargæði 24. ágúst 2004 00:01
Sjónvarpsstöðvar Íslenska útvarpsfélagsins senda út stafrænt frá 1. nóvember. Það er bylting í sjónvarpsútsendingum á Íslandi, segir Sigurður G. Guðjónsson, útvarpsstjóri félagsins og forstjóri Norðurljósa. Breytingarnar kosti fyrirtækið um 400 milljónir. Framkvæmdastjóri Sjónvarpsmiðstöðvarinnar, segir fullkomin myndgæði helsta mun stafræns sjónvarps frá því sem nú sé. Sigurður segir að með stafrænum sjónvarpsútsendinum bjóðist áskrifendum aðgangur að allt að 46 sjónvarpsrásum miðað við 14 rásum Fjölvarpsins nú. Félagið geti hins vegar sent út allt að 160 sjónvarpsrásir í framtíðinni á Höfuðborgarsvæðinu. Sigurður segir að ráðist hafi verið í breytingarnar þar sem framleiðslu núverandi áskriftakerfis hafi verið hætt: "Fyrir áskriftasjónvarp eins og Stöð 2 er því ekkert um annað að ræða en að fara inn í næstu kynslóð sjónvarps og kaupa nýja afruglara, sendabúnað og afruglarakerfi." Ólafur Már Hreinsson, framkvæmdastjóri Sjónvarpsmiðstöðvarinnar og áhugamaður um starfæna tækni, segir stafrænt sjónvarp þekkt erlendis. "Þetta er í raun það sem hefur verið að gerast annas staðar, eins og á Norðurlöndunum, og í Bretlandi hefur starfæn útsending verið í gangi í nokkur ár." Ólafur segir að ekki þurfi að skipta um sjónvarp því afruglarar nemi útsendinguna. "Tæknin þróast og það er örugglega stutt í að sjónvarp verði líka stafræn sem þýðir enn betri myndgæði. Það eru svo margir á Íslandi sem eru að berjast við drauga og skugga á skjánum sem að verða nú úr sögunni." Sigurður segir 70-75% sjónvarpsheimila ná stafrænu útsendingunum til að byrja með. "Við hefjumst handa á svokölluðu Faxaflóasvæði, frá Akranes að Reykjanesi. Annar áfangi getur ekki hafist fyrr en við fáum leyfi til að fara með stafrænt sjónvarp út fyrir það svæði. Við erum hins vegar tilbúnir að fara til 95% sjónvarpsheimila um leið og Póst- og fjarskiptastofnun leyfir." Sigurður segir 40 þúsund myndlyklum verða skipt út í fyrsta áfanga en nú séu 60 þúsund lyklar í notkun. Áskriftagjald hækki ekki á einstaka stöðvar en með fleiri stöðvum breytist áskriftarmöguleikar.
Fréttir Innlent Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kristrún á opnum fundi nefndar um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Sjá meira