Stendur ekki til að breyta 24. ágúst 2004 00:01
Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra segir að ekki komi til greina að fella niður útflutningsálag á kvóta. Hann segist þó sjá það í hendi sér að sérstækar aðgerðir, eins og útflutningsálag, byggðakvóti og línuívilnun, bitni á byggðarlögum sem ekki njóti slíkra aðgerða. Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum, Bergur Ágústsson, heldur því fram að sértækar aðgerðir í sjávarútvegsmálum hafi kostað Eyjamenn um fjögur hundruð milljónir á síðustu tveimur árum og yfir milljarð sé litið lengra aftur í tímann. "Það er eðli aðgerða eins og byggðakvóta og línuívilnunar að það er verið að taka úr hinum almenna potti og úthluta á sértækan hátt. Þar af leiðandi tapa þeir sem ekki njóta sérstækrar úthlutunar eða ívilnunar. Ég hef ekki reiknað þetta út fyrir byggðarlögin og veit ekki hvað þeir eru með inni í þessum útreikningum og hvort þeir eru réttir," segir Árni um staðhæfingar bæjarstjórans. Hann segist hins vegar sjá í hendi sér að áhrif sértækra aðgerða geti verið á þá lund sem Bergur lýsir en veit ekki hvort þær komi verr niður á einu byggðarlagi umfram annað. Árni bendir hins vegar á að réttlæting hinna sérstæku aðgerða sé meðal annars fólgin í því að skapa meiri sátt um fiskveiðistjórnunarkerfið og auka þannig stöðugleika í rekstrarumhverfinu. "En ástæða aðgerðanna er sú að menn telja að þær styrki kerfið í heild sinni og auki sátt um kerfið. Þannig að staða þeirra sem eru í almennu úthlutuninni er öruggari og tryggari jafnvel þótt einhverjir geti reiknað þetta á þennan hátt þá gæti vel verið að það hefðu aðrir og verri hlutir getað gerst," segir Árni. Um útflutningsálagið, sem leggst á fisk sem fluttur er ferskur á markaði í útlöndum, segir Árni að ekki standi til að endurskoða það fyrirkomulag. "Enda er það mjög gagnrýnt hversu mikið er flutt úr landi af óunnum fiski og að ekki sé skylt að bjóða upp allan fisk á innanlands áður en hann fer úr landi. Það er auðvitað dálítið mismunandi eftir verstöðvum hversu mikið er flutt óunnið úr landi og það getur vel verið að Vestmannaeyjar séu þar ofarlega á blaði," segir Árni M. Mathiesen.
Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira