Innlent

Kerfinu ekki breytt

Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra segir að ekki komi til greina að fella niður útflutningsálag á kvóta. Hann segist þó sjá það í hendi sér að sérstækar aðgerðir, eins og útflutningsálag, byggðakvóti og línuívilnun, bitni á byggðarlögum sem ekki njóti slíkra aðgerða. Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum, Bergur Ágústsson, heldur því fram að sértækar aðgerðir í sjávarútvegsmálum hafi kostað Eyjamenn um fjögur hundruð milljónir á síðustu tveimur árum og yfir milljarð sé litið lengra aftur í tímann. "Það er eðli aðgerða eins og byggðakvóta og línuívilnunar að það er verið að taka úr hinum almenna potti og úthluta á sértækan hátt. Þar af leiðandi tapa þeir sem ekki njóta sérstækrar úthlutunar eða ívilnunar. Ég hef ekki reiknað þetta út fyrir byggðarlögin og veit ekki hvað þeir eru með inni í þessum útreikningum og hvort þeir eru réttir," segir Árni um staðhæfingar bæjarstjórans. Hann segist hins vegar sjá í hendi sér að áhrif sértækra aðgerða geti verið á þá lund sem Bergur lýsir en veit ekki hvort þær komi verr niður á einu byggðarlagi umfram annað. Árni bendir hins vegar á að réttlæting hinna sérstæku aðgerða sé meðal annars fólgin í því að skapa meiri sátt um fiskveiðistjórnunarkerfið og auka þannig stöðugleika í rekstrarumhverfinu. "En ástæða aðgerðanna er sú að menn telja að þær styrki kerfið í heild sinni og auki sátt um kerfið. Þannig að staða þeirra sem eru í almennu úthlutuninni er öruggari og tryggari jafnvel þótt einhverjir geti reiknað þetta á þennan hátt þá gæti vel verið að það hefðu aðrir og verri hlutir getað gerst," segir Árni. Um útflutningsálagið, sem leggst á fisk sem fluttur er ferskur á markaði í útlöndum, segir Árni að ekki standi til að endurskoða það fyrirkomulag. "Enda er það mjög gagnrýnt hversu mikið er flutt úr landi af óunnum fiski og að ekki sé skylt að bjóða upp allan fisk á innanlands áður en hann fer úr landi. Það er auðvitað dálítið mismunandi eftir verstöðvum hversu mikið er flutt óunnið úr landi og það getur vel verið að Vestmannaeyjar séu þar ofarlega á blaði," segir Árni M. Mathiesen.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×