Kerfinu ekki breytt 24. ágúst 2004 00:01
Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra segir að ekki komi til greina að fella niður útflutningsálag á kvóta. Hann segist þó sjá það í hendi sér að sérstækar aðgerðir, eins og útflutningsálag, byggðakvóti og línuívilnun, bitni á byggðarlögum sem ekki njóti slíkra aðgerða. Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum, Bergur Ágústsson, heldur því fram að sértækar aðgerðir í sjávarútvegsmálum hafi kostað Eyjamenn um fjögur hundruð milljónir á síðustu tveimur árum og yfir milljarð sé litið lengra aftur í tímann. "Það er eðli aðgerða eins og byggðakvóta og línuívilnunar að það er verið að taka úr hinum almenna potti og úthluta á sértækan hátt. Þar af leiðandi tapa þeir sem ekki njóta sérstækrar úthlutunar eða ívilnunar. Ég hef ekki reiknað þetta út fyrir byggðarlögin og veit ekki hvað þeir eru með inni í þessum útreikningum og hvort þeir eru réttir," segir Árni um staðhæfingar bæjarstjórans. Hann segist hins vegar sjá í hendi sér að áhrif sértækra aðgerða geti verið á þá lund sem Bergur lýsir en veit ekki hvort þær komi verr niður á einu byggðarlagi umfram annað. Árni bendir hins vegar á að réttlæting hinna sérstæku aðgerða sé meðal annars fólgin í því að skapa meiri sátt um fiskveiðistjórnunarkerfið og auka þannig stöðugleika í rekstrarumhverfinu. "En ástæða aðgerðanna er sú að menn telja að þær styrki kerfið í heild sinni og auki sátt um kerfið. Þannig að staða þeirra sem eru í almennu úthlutuninni er öruggari og tryggari jafnvel þótt einhverjir geti reiknað þetta á þennan hátt þá gæti vel verið að það hefðu aðrir og verri hlutir getað gerst," segir Árni. Um útflutningsálagið, sem leggst á fisk sem fluttur er ferskur á markaði í útlöndum, segir Árni að ekki standi til að endurskoða það fyrirkomulag. "Enda er það mjög gagnrýnt hversu mikið er flutt úr landi af óunnum fiski og að ekki sé skylt að bjóða upp allan fisk á innanlands áður en hann fer úr landi. Það er auðvitað dálítið mismunandi eftir verstöðvum hversu mikið er flutt óunnið úr landi og það getur vel verið að Vestmannaeyjar séu þar ofarlega á blaði," segir Árni M. Mathiesen.
Mest lesið Öll spjót beinast að ÍBR vegna skipulagsleysis og „rugls í ræsingu“ Innlent Brotið á barni með því að loka það inni í einveruherbergi Innlent Kraftaverk að ekki fór verr þegar bíll hafnaði ofan á tveimur Innlent Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Innlent Leitar kofans sem hvarf í heilu lagi Innlent Von á leifum fellibylsins Erin til landsins Veður „Heilt yfir“ friðsamleg Menningarnótt en nokkrir ofbeldisfullir Innlent Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Innlent Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísar Klöru Innlent Þrjár líkamsárásir og yfir tuttugu ungmenni í athvarf Innlent Fleiri fréttir Myndskeið af rallýslysi, sjálfstæð Úkraína og brennan á Bergþórshvoli Brotið á barni með því að loka það inni í einveruherbergi Leitar kofans sem hvarf í heilu lagi Vestfirðingar fagna í kvöld: „Þetta er bara mjög stórt“ Öll spjót beinast að ÍBR vegna skipulagsleysis og „rugls í ræsingu“ Hlaupið aftur í rénun eftir vöxt í nótt Þrjár líkamsárásir og yfir tuttugu ungmenni í athvarf Hver verður Íslandsmeistari í hrútaþukli? Kraftaverk að ekki fór verr þegar bíll hafnaði ofan á tveimur Akstursíþróttasamfélagið harmi slegið, unglingadrykkja á Menningarnótt og hrútaþukl Evrópusambandið, menntamál, stýrivextir og Gasa í Sprengisandi „Heilt yfir“ friðsamleg Menningarnótt en nokkrir ofbeldisfullir Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísar Klöru Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Algjört hrun í fálkastofninum Þétting byggðar hafi ekki slegið í gegn Jökulhlaupið í hægum vexti Nýi brennsluofn göngugarpsins mættur á Sólheima Grunur um brot gegn fleiri börnum Grunur um brot gegn öðru barni, alvarlegt slys og tíðindi á Menningarnótt Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Gríðarlegt magn myndefnis til skoðunar hjá lögreglu Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” 99 ára gömul tombóla á Borg í Grímsnesi og engin núll Vínsali býst við ákæru, kúnnalisti Epstein og stemming í bænum Reiðhjólabændur með vaktað hjólastæði í Traðarkoti til miðnættis Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist „Beint frá býli dagurinn“ býður landsmönnum í heimsókn Sjá meira